Bankamálaráðherra markvisst haldið frá upplýsingum um yfirtökuna

„Um kvöldið hringdi Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í mig og segir mér formálalaust af því, að hún telji að til standi að taka Glitni yfir. Hún átti engin orð yfir að forsætisráðherra skyldi ekki hafa kallað mig til eða upplýst um málið. Hann væri verkstjóri ríkisstjórnarinnar og bæri skylda til að halda utan um ráðuneyti sitt sem slíkt, óháð því úr hvaða flokki menn kæmu.“

Þetta skrifar Björgvin G. Sigurðsson, sem var viðskiptaráðherra í hruninu, um aðdragandann að þjóðnýtingu Glitnis í septemberlok 2008. Viljinn heldur áfram að birta brot úr bókinni Stormur, sem Björgvin skrifaði fyrir átta árum og hefur nú verið birt í heild sinni á samnefndri vefsíðu.

Björgvin skrifar:

„Það kom ekki í ljós fyrr en síðar að eftir lokun markaða fimmtudaginn 25. september höfðu Glitnismennirnir Lárus Welding og Þorsteinn Már Baldvinsson átt örlagaríkan fund með seðlabankastjóra og óskað eftir láni til bjargar bankanum. Strax að fundinum loknum hringdi Davíð í Geir, sem ákvað samstundis að halda til Íslands.

Þorsteinn Már Baldvinsson var stjórnarformaður Glitnis.

Bón Glitnismanna til Seðlabankans snerist um tugmilljarða neyðarlán til þess að standa skil á láni sem var á gjalddaga í nóvember. Bankanum hafði mistekist að endurfjármagna lánið og alkul markaða eftir fall Lehman Brothers gerði endanlega út um þá fyrirætlan. Auk þess var bankinn með annað stórt lán á gjalddaga eftir áramótin.

Þrot blasti við Glitni fengi hann ekki stórt lán sér til hjálpar. Það er kaldhæðnislegt að síðar kom í ljós að bankinn var skömmu áður við það að ná samningum um lánalínu í Þýskalandi, sem Seðlabanki Íslands hafði þá fengið. Þar með var „íslenski kvótinn“ búinn, sögðu bæverskir bankamenn okkur í samtölum síðar.

Þegar þarna var komið var hins vegar ekki um annað að ræða fyrir ríkið en að annaðhvort taka bankann yfir eða lána honum gríðarlegar upphæðir. Hvorutveggja afleitir kostir fyrir stöðu ríkissjóðs og þess sem eftir stæði af fjármálakerfinu.

Viðskiptaráðuneytið hafði fyrir löngu ákveðið að fara þennan laugardag í ferð um Suðurland með starfsmönnum og mökum. Þar sem við áðum á Borg í Grímsnesi og heyrðum fréttir af fundum ráðherranna og seðlabankastjóranna bað ég Jón Þór Sturluson, aðstoðarmann minn, að hringja í Tryggva Þór Herbertsson efnahagsráðgjafa Geirs og spyrja fregna af þessum fundum.

Nei, ekkert sérstakt að frétta, sagði Tryggvi við Jón Þór. Verið að fara yfir stöðu efnahagsmála og óróleikann á mörkuðunum vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar, bætti hann við.

Jón Þór Sturluson var aðstoðarmaður viðskiptaráðherra. Hann er nú aðstoðarforstjóri FME.

Jón Þór og Tryggvi voru ágætir félagar og höfðu starfað saman, og því treysti Jón Tryggva og trúði honum enda stóðu engin efni til annars. Okkur datt ekki annað í hug en að efnahagsráðgjafi forsætisráðherra gæfi okkur til kynna hvað stæði yfir þá stundina að tjaldabaki. Ég get hvorki fullyrt um hvað Tryggvi vissi á þeirri stundu né hvað lá að baki því sem hann sagði við Jón Þór. Seinna sagði Jón Þór mér að þeir Tryggvi hefðu rætt þetta síðar og þá hefði komið fram að Tryggvi hefði fengið um það fyrirmæli að segja engum neitt á þeirri stundu.

Sólarhring síðar var þjóðnýting Glitnis á lokasprettinum.

Snemma sunnudags var áfram kyrrt á yfirborðinu, en eftir hádegi fór allt af stað og lokaþáttur aðgerðanna hófst. Í þeirri skák þurftu Davíð og Geir að tryggja stuðning Samfylkingarinnar, sem fram að því hafði ekkert fengið að vita um málið.

Það sýndi kannski best innbyrðis stöðu flokkanna að Samfylkingunni var ekki kippt um borð fyrr en allt var nánast um garð gengið. Okkur var meðvitað haldið frá öllum upplýsingum um málið og við höfðum því litlar eða engar forsendur til þess að ganga gegn niðurstöðunni, með afleiðingum sem enginn gat séð fyrir.

Þetta var náttúrlega fráleit stjórnsýsla og með öllu óboðleg, en innkoma Samfylkingarinnar í málið varð þó ekki með þeim hætti sem upp var lagt með.

Síðdegis á sunnudeginum hringdi Gestur Jónsson lögmaður Glitnis í Ingibjörgu Sólrúnu og spurði hvort hún vissi hvað væri að gerast með Glitni. Stíf fundahöld væru í stjórnarráðinu og enginn frá Samfylkingunni væri þátttakandi í þeim svo vitað væri.

Í kjölfar þessa hringdi Ingibjörg í Geir til að fá fregnir af gangi mála. Það er vitanlega hreint ótrúlegt að formaður Samfylkingarinnar skyldi fá af því fréttir frá manni úti í bæ hvaða atburðarás hafði farið af stað tveimur sólarhringum fyrr. Svo alvarlegur trúnaðarbrestur í öðru eins alvörumáli hefði átt að marka stjórnarslit þá þegar.

Geir H. Haarde fv. forsætisráðherra.

Mér er óskiljanlegt hvernig Geir datt í hug að láta heila tvo sólarhringa líða án þess að upplýsa samstarfsflokkinn. Málsbætur hans eru líklega þær, að Ingjbjörg Sólrún hafði orðið fyrir áfalli í New York og var á leið í alvarlega skurðaðgerð og því þótti Geir kannski ekki við neinn að tala. Í öllu falli gætti hans þess vel að upplýsa samstarfsflokkinn ekki um yfirvofandi fall eins helsta viðskiptabankans. Samfylkingunni var stillt upp frammi fyrir orðnum hlut.

Eftir samtalið við Geir afréð Ingibjörg að Össur Skarphéðinsson tæki við af Þórunni Sveinbjarnardóttur sem staðgengill sinn. Hún setti sig í samband við Össur og Jón Þór, en hann var jafnframt flokknum til efnahagsráðgjafar. Báða bað hún að segja engum frá þessu fyrst um sinn. Hún var formaður flokksins og réði því og ekki við þá að sakast um það.

Um kvöldið hringdi Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í mig og segir mér formálalaust af því, að hún telji að til standi að taka Glitni yfir. Hún átti engin orð yfir að forsætisráðherra skyldi ekki hafa kallað mig til eða upplýst um málið. Hann væri verkstjóri ríkisstjórnarinnar og bæri skylda til að halda utan um ráðuneyti sitt sem slíkt, óháð því úr hvaða flokki menn kæmu.

Jóhanna bókstaflega trúði því ekki að gengið væri fram með þessum hætti í jafnalvarlegu máli. Á öllum sínum langa og litríka ferli hafði hún ekki áður reynt slíkt og var þó ýmsu vön.

Við mér horfir þetta þannig nú, að ef formenn stjórnarflokkanna treystu mér ekki fyrir aðkomu að málinu bar þeim að koma hreint fram og segja mér það. Biðja mig að víkja sem ráðherra eða gefa mér kost á að bregðast við því með öðrum hætti. Það gerðu þau ekki. Ég hef ekki fundið aðra skýringu á þessari ótrúlegu framkomu en tortryggni og vantraust í minn garð af hálfu þeirra og seðlabankastjóra.

Ég vissi reyndar um afstöðu Davíðs til mín, enda lá hann ekki á henni við þá sem hann talaði við úr stjórnmálum eða bankaheiminum. Á dauða mínum átti ég þó heldur von en að reyna þetta af hálfu Geirs og Ingibjargar. Ég hafði borið virðingu og traust til beggja og átt við þau ágætt samstarf.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fv. utanrikisráðherra.

Ég hitti Ingibjörgu Sólrúnu nú í haust til þess að ræða þessi mál og önnur. Við áttum hreinskiptar samræður þar sem hún lýsti aðdraganda og atburðum þessa dags fyrir mér. Hún hefði verið að fara í aðgerð þennan dag og þótt mestu skipta að koma málinu formlega í farveg áður hér heima. Auðvitað hlýtur henni að hafa sárnað við Geir að hann skyldi ekki hafa samband við hana til þess að setja hana inn í þær örlagaákvarðanir sem voru að taka á sig mynd. Sú framkoma var óviðunandi í alla staði.

Ingibjörg Sólrún minnist þess ekki að hafa farið fram á það, að ég yrði ekki látinn vita af Glitnismálinu. Hún hefði litið á það sem hlutverk Geirs að kalla mig að borðinu.

Ég get ekki ímyndað mér að bæði aðstoðarmaður minn og nánasti samstarfsfélagi úr flokki og ríkisstjórn gætu hvor í sínu lagi hafa komist að þeirri niðurstöðu að segja mér ekki af atburðarás, sem á þessari stundu helltist eins og holskefla yfir sökkvandi skip. En þessar eru staðreyndir mála og skipta svosem ekki miklu í dag í hinu stóra samhengi hlutanna.

Því má heldur ekki gleyma, að lífið var ekki einfalt fyrir Ingibjörgu þessa sérkennilegu daga í upphafi mikillar atburðarásar. Hún hafði fallið í yfirlið á fundi Sameinuðu þjóðanna í New York á föstudeginum og rannsókn leiddi í ljós meinvarp í heila. Þegar hún frétti af Glitnismálinu seint á sunnudeginum lá fyrir að læknar höfðu ákveðið bráðaaðgerð strax á mánudag. Ég geri ekki kröfur til þess að við slíkar aðstæður hugsi fólk rökrétt eða muni allt í smáatriðum.

Í Kastljósi mánudagskvöldið 29. september viðurkenndi Geir að ekki hefði verið rétt að Glitnismálinu staðið gagnvart mér og ráðuneytinu. Hann sagði jafnframt að honum þætti það leitt. Rétt hefði verið að hafa ráðuneytið með í málinu frá fyrsta degi. Þessa yfirlýsingu Geirs kunni ég að meta og virti við hann og við áttum eftir að eiga náið og gott faglegt samstarf næstu vikur og mánuði.“