Fyrsta dauðsfallið tengt Kórónaveirunni hér á landi: Óvíst um dánarorsök

Erlendur ferðamaður sem leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra veikinda í gær og lést skömmu síðar, reyndist smitaður af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdómnum.

Almannavarnir hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þessar sorgarfregnir koma fram.

Ferðamaðurinn mun hafa látist skömmu eftir að hann leitaði til stofnunarinnar. Rétt er að taka fram, að dánarorsök liggur ekki fyrir en sjúkdómseinkennin voru ekki dæmigerð fyrir COVID-19. Unnið er að því að skera úr um dánarorsökina.

„Margþætt vinna tekur nú við vegna þessa máls, bæði varðandi andlát mannsinns og stuðning við hans nánustu. Þá þarf að styðja við og setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví, sótthreinsa heilsugæslustöðina ásamt því að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir Húsvíkinga. Öll þessi verkefni eru unnin á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í náinni samvinnu við sóttvarnalækni, landlækni, Rauða krossinn og er unnið í samstarfi við aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi eystra og heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík verður í lágmarki, en eins og áður sagði er allt kapp lag á að tryggja að hægt verði að halda uppi mikilvægri þjónustu við íbúa á starfssvæði hennar og aðra sem kunna að þurfa á þjónustu hennar að halda. Tilkynningar er að vænta um hvernig þjónustu verður hagað,“ segir í tilkynningu Almannavarna.