Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanki Íslands hafa undirritað samning um skilmála við framkvæmd á veitingu ábyrgða ríkisins á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja í tengslum við heimsfaraldur kórónaveiru.
Sökum kórónuveirufaraldursins standa mörg fyrirtæki frammi fyrir miklu tímabundnu tekjufalli og lausafjárvanda. Af þeim sökum heimilaði Alþingi fjármála- og efnahagsráðherra með sérstökum lögum að veita ábyrgð ríkisins á hluta af viðbótarlánum sem lánastofnanir veita fyrirtækjum, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Var ráðherra heimilað að semja við Seðlabanka Íslands um framkvæmd ábyrgðakerfisins.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í Hlaðvarpi Viljans á fimmtudag að von væri á gengið yrði frá endanlegu samkomulagi milli stjórnvalda og Seðlabankans vegna ríkisábyrgða og nú liggur það fyrir, samkvæmt tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Markmið kerfisins er að styðja við fyrirtæki sem verða fyrir verulegum áhrifum vegna útbreiðslu kórónaveirunnar og viðbrögðum stjórnvalda vegna faraldursins. Ábyrgðirnar eru liður í því að viðhalda sem hæstu atvinnustigi og fjölbreyttustu atvinnulífi.
Hver lánastofnun getur nýtt tiltekinn hluta af heildarumfangi ábyrgðanna. Viðbótarlán verður að veita fyrir lok árs 2020 og hámarkslánstími frá útgáfu er 18 mánuðir. Horft verður til þess að ábyrgð á einstökum viðbótarlánum verður að hámarki 70%. Lán til einstaks aðila munu geta að hámarki numið tvöföldum árslaunakostnaði árið 2019 og launakostnaður félags verður að lágmarki hafa verið 25% af heildarrekstrarkostnaði þess árið 2019. Lán sem nýtur ábyrgðar getur hæst numið kr. 1,2 ma.kr.
Endanlegt fyrirkomulag ætti að liggja fyrir innan skamms eftir nánari útfærslu milli Seðlabankans og lánastofnana og í kjölfarið gæti veiting viðbótarlána með ábyrgð ríkisins hafist hjá lánastofnunum.