Ekki virðist vera sérstakur áhugi meðal landsmanna á að breyta núgildandi stjórnarskrá, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem unnin var fyrir formenn stjórnmálaflokkanna. Mun fleiri eru mjög ánægðir eða frekar ánægðir með núgildandi stjórnarskrá, en þeir sem eru frekar óánægðir eða mjög óánægðir.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti fyrir hönd formanna stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi tilhögun samráðs við almenning við endurskoðun stjórnarskrárinnar á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmdi í sumar ítarlega könnun á viðhorfum almennings til stjórnarskrárinnar. Voru niðurstöðurnar kynntar á blaðamannafundinum.
Í framhaldi af skoðanakönnuninni verður haldin tveggja daga rökræðukönnun 9. og 10. nóvember næstkomandi þar sem 300 manns hvaðanæva af landinu verður boðið að taka þátt. Þátttakendur á umræðufundinum verða valdir úr hópi þeirra sem tóku skoðanakönnunina. Á fundinum verður sérstaklega rætt um lýðræði á Íslandi – kosningakerfi, kjördæmi og þjóðaratkvæðagreiðslur. Kannað verður hvort viðhorf þátttakenda breytist við nánari kynningu á málinu og umræður.
Jafnframt kom fram á blaðamannafundinum að Háskóli Íslands hefur hleypt af stað lýðvistunarverkefni, þ.e. umræðuvef í samstarfi við Betra Ísland (vefur á vegum sjálfseignarstofnunarinnar Íbúa) þar sem almenningi gefst kostur á að koma á framfæri eigin hugmyndum um stjórnarskrárbreytingar og afla þeim stuðnings.
Loks verður samráðsgátt stjórnvalda nýtt áfram til að samráðs um frumvarpsdrög sem koma frá formannahópnum.
„Við höfum í dag kynnt margháttað fyrirhugað samráð við almenning við endurskoðun stjórnarskrárinnar líkt og fyrirheit voru gefin um þegar þessi vinna hófst. Þar á meðal er fyrirhuguð rökræðukönnun í nóvember,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. „Ég bind miklar vonir við að þessi vandaði og um sumt nýstárlegi undirbúningur eigi eftir að geta af sér góðar tillögur um breytingar á stjórnarskrá en veiti okkur líka markverða reynslu við að virkja almenning til þátttöku í opinberri stefnumótun í nútímasamfélagi,“ sagði forsætisráðherra ennfremur á fundinum.
Niðurstöður könnunar á viðhorfum almennings til stjórnarskrárinnar