Ljóst að mismunandi skoðanir verða um opnun landsins

Dr. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Lögreglan

„Ég held að það sé nokkuð augljóst að við erum að hefja nýja vegferð í baráttunni við veiruna, sem að annars vegar felst í því að standa vörð um þann góða árangur sem að náðst hefur og svo hins vegar að koma samfélaginu í ásættanlegt horf og koma hjólum atvinnulífsins í gang til hagsbóta fyrir alla landsmenn,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi Almannavarna í dag.

Hann viðurkenndi að næstu skref, til að mynda opnun landsins sem fyrirhuguð er 15. júní nk., yrðu áskorun og bæði annars eðlis og kannski erfiðari og snúnari en sú sem þjóðin hefði staðið frammi fyrir til þessa.

„Það er ljóst að mismunandi skoðanir verða uppi um það hvernig eigi að opna samfélagið aftur og hvernig eigi að koma atvinnulífinu aftur í gang,“ bætti hann við og sagði að samstaða þjóðarinnar væri mikilvægari á næstunni en nokkru sinni fyrr.

Verkefnisstjórn falið að útfæra opnunina

Verkefnisstjórn sem heilbrigðisráðherra skipar mun stýra undirbúningi og framkvæmd við sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins, í samræmi við ákvörðun stjórnvalda.

Heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu minnisblað varðandi þetta á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní geti ferðamenn sem koma til landsins farið í skimun á Keflavíkurflugvelli eða framvísað vottorði sem sóttvarnalæknir metur gilt kjósi þeir það fremur en að fara í sóttkví.

Tveimur vikum eftir að skimun hefst verður verkefnið metið og tekin ákvörðun um framhaldið á grundvelli þess.

Þórólfur sagðist á fundinum telja að lengri tíma muni þurfa til að meta hvernig til tekst og hann muni koma þeim sjónarmiðum á framfæri. Ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af útfærslunni og treysta verði því að ekki verði farið af stað nema fyrir liggi að útfærslan sé klár og sóttvarnir landsins tryggðar.

Í minnisblaði ráðherranna segir að viss áhætta sé fólgin í því að draga úr sóttvarnaráðstöfunum og liðka fyrir ferðalögum til og frá landinu þar sem fá ríki hafi náð jafn góðum tökum á faraldrinum og hér. Aftur á móti megi líta til þess að í ljósi góðrar stöðu okkar og þeirrar staðreyndar að fyrr eða síðar verði aukin ferðalög til og frá landinu óhjákvæmileg sé nú tímabært að huga að tilslökunum. Að ýmsu leyti sé hagstætt að gera það núna þar sem ferðalög á milli landa séu hvort eð er í lágmarki og því svigrúm fyrir hendi til að prófa sig áfram án þess að missa tök á ástandinu.

Heilbrigðisráðherra hefur falið Hildi Helgadóttur verkefnastjóra og forstöðumanni á Landspítala að leiða vinnu verkefnisstjórnarinnar. Í henni munu enn fremur eiga sæti fulltrúar sóttvarnalæknis, ríkislögreglustjóra, ISAVIA, Landspítala og lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli. Yfirlögfræðingur heilbrigðisráðuneytisins verður starfsmaður verkefnastjórnarinnar.

Eins og fram kemur í meðfylgjandi skipunarbréfi formanns er markmiðið að sýni verði tekin úr öllum komufarþegum í Keflavík sem það kjósa fremur en að fara í sóttkví. Vottorð/rannsóknarniðurstaða frá öðrum löndum geta einnig komið í stað sóttkvíar, að því gefnu að sóttvarnalæknir meti vottorðið fullnægjandi. Hlutverk verkefnisstjórnarinnar verður einnig að greina hvaða kröfur þarf að gera til slíkra vottorða og hvernig þeim skuli framvísað og þau metin af hérlendum yfirvöldum.

Verkefnisstjórnin á einnig að gera tillögur um framkvæmd sýnatöku og greiningar hjá farþegum sem koma til landsins eftir öðrum leiðum en með flugi til Keflavíkur.

Áætlun með ýtarlegri verk- og tímaáætlun ásamt kostnaðaráætlun skal liggja fyrir eigi síðar en 25. maí næstkomandi.