„Merkileg stefnubreyting hjá Samfylkingunni, eða hvað?“ segir Jón Gunnarsson, fv. dómsmálaráðherra, á Facebook í kvöld, þar sem hann deilir frétt Viljans frá í dag um ummæli Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, um að stefnubreytingar sé þörf í hælisleitendamálum.
Afstaða Kristrúnar í hælisleitendamálum, sem sætir nokkrum tíðindum, kom fram í nýjum þætti hlaðvarpsins Ein Pæling sem Þórarinn Hjartarson stýrir, en þar tekur hún undir þau sjónarmið, að núgildandi hælisleitendakerfi sé bæði „ósjálfbært og ósanngjarnt“ og nauðsynlegt sé að eiga „hreinskiptið samtal“ um það hvernig því skuli háttað til lengri tíma. Hún hefur skilning á áformum Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um lokuð búsetuúrræði og telur að það að virða ekki úrskurði þurfi að sæta afleiðingum. Hún segir að út frá jafnaðarsjónarmiðinu sé nauðsynlegt að verja kerfin og að það sé ekki hægt að reka velferðarríki án lokaðra kerfa og landamæra. Því sé ekki raunhæft að Ísland skeri sig úr er varðar reglur á öðrum Norðurlöndum.
Jón Gunnarsson segir popúlíska flokka gjarnan sveiflast eftir tíðarandanum og erfitt sé að treysta því hvert þeir fari næst og er þeirri sneið augljóslega beint að Samfylkingunni.
„Það fer eftir því hvaðan byrinn blæs. Með þrautseigju höfum við Sjálfstæðismenn komið hælisleitendamálum á dagskrá. Það að formaður Samfylkingarinnar bendi á okkur sjálfstæðismenn sem ábyrgðaraðila á erfiðri stöðu núna er auðvitað ekkert annað en hræsni. Fyrir 11 mánuðum var kosið á Alþingi um frumvarp mitt um útlendingamál, fyrstu breytingu sem okkur hefur tekist að koma í gegnum þingið á undanförnum árum. Eins og meðfylgjandi listi ber með sér kusu allir þingmenn Samfylkingar gegn frumvarpinu og sumir þeirra höfðu um það stór orð. En batnandi mönnum er best að lifa og nú eru augu þessa fólks að opnast og þau viðurkenna að hafa verið villu vegar í umræðu um þessi mál á liðnum árum.
Andstæðingar okkar í þessum málaflokki, hvort sem er innan eða utan ríkisstjórnar, bera ábyrgð á alvarlegri stöðu mála í dag. Það að benda á einhvern annan er eins og reyna að endurskrifa söguna þegar þú ert með slæma samvisku. Nú sameinumst við vonandi um nýtt frumvarp okkar sjálfstæðismanna sem bindur enda á þá vitleysu sem hefur viðgengist. Það verður áhugavert að fylgjast nú með þeim fjölmiðlum og fjölmiðlamönnum sem hafa lagt sitt á vogaskálarnar í umræðu um þessi mál á undanförnum árum,“ segir Jón og lætur fylgja með lista yfir þá alþingismenn, sem greiddu atkvæði gegn lagafrumvarpi hans við atkvæðagreiðslu í þinginu, hinn 15. mars 2023.
Nei sögðu þá:
Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Eva Sjöfn Helgadóttir, Guðbrandur Einarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Sigmar Guðmundsson, Viðar Eggertsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir.