Sterkar og efnislegar forsendur eru til þess að líta á stöðu mála hér á landi með björtum augum, segja formaður og hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands á vef samtakanna í dag.
Segja þau að á móti hverri neikvæðri tilfinningu þurfi tíu jákvæðar tilfinningar eða upplifanir til að vega upp á móti neikvæðninni og leggja því til tíu jákvæð atriði inn í umræðuna um stöðuna hér á landi:
- Lífskjör á Íslandi hafa á flesta mælikvarða batnað á undanförnum árum og áratugum. Til að mynda er landsframleiðsla á mann um 18-falt meiri en hún var fyrir 100 árum síðan.
- Vextir á Íslandi hafa sjaldan verið lægri og ef horft er á vexti á fjármálamarkaði hafa þeir aldrei verið lægri. Seðlabanki Íslands er í dauðafæri til að lækka vexti enn frekar og koma þeim þannig í samkeppnishæft horf.
- Útflutningur Íslands hefur margfaldast síðustu áratugi og þar á meðal aukist um 269% á árunum 25 frá inngöngu í EES, samanborið við 131% árin 25 á undan.
- Á sama tíma, eða frá 1994, hefur kaupmáttur landsmanna aukist um 86% og hefur aldrei verið meiri.
- Jafnvel þó að spádómar svartsýnisradda verði ofan á er staða Íslands til að takast á við efnahagslega erfiðleika sterkari en nokkru sinni fyrr. Enn er hér viðskiptaafgangur og Ísland er hreinn lánveitandi við útlönd.
- Skuldastaða er almennt hófleg og sögulega lítil, hvort sem horft er á atvinnulífið, heimili eða hið opinbera sem eykur getuna til að takast á við áföll.
- Lágmarkslaun á Íslandi voru meðal þeirra hæstu í heiminum áður en lífskjarasamningarnir voru samþykktir.
- Þrátt fyrir áföll svo sem loðnubrest og samdrátt í ferðaþjónustu var atvinnuleysi í mars einungis 2,9%.
- Ferðamönnum í apríl fækkaði aðeins um 6 prósentustigum meira en spá Isavia gerði ráð fyrir, þrátt fyrir fall Wow air.
- Ísland er í 2. sæti af 146 á lista yfir félagslegar framfarir, mælikvarða sem „…endurspeglar hæfni samfélags til að mæta grunnþörfum borgaranna, stuðla að og viðhalda lífgæðum þeirra og skapa hverjum tækifæri til betra lífs“.
„Horft fram á veginn eru miklar áskoranir, t.d. uppbygging nýrra atvinnugreina, tæknibreytingar, barátta gegn hlýnun jarðar og öldrun þjóðarinnar. Sagan og upptalningin hér að ofan sýnir okkur að við getum tekist á við þær.
Við erum sífellt að reyna að feta hinn gullna meðalveg bjartsýni og varfærni. Lífið er vissulega hverfult og gangur atvinnulífsins er upp og ofan. Þá er gott að muna að stundum er púki sem togar huga okkur að ósekju á neikvæðar slóðir – höldum honum á mottunni,“ segja þau Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs, og Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ennfremur í grein sinni.