Viðskiptaráð segir sjálfan EES-samninginn undir í orkupakkadeilunni

Gunnar Dofri Ólafsson lögfræðingur.

Viðskiptaráð Íslands hefur sent Alþingi umsögn sína um innleiðingu þriðja orkupakkans og segir þar meðal annars að undir eðlilegum kringumstæðum kalli innleiðing þessarar EES-gerðar ekki á ítarlega umsögn Viðskiptaráðs.

„Í ljósi þess hvert umræðan um málið er komin, þar sem umfangsmesta og mikilvægasta milliríkjasamningi sem Ísland hefur gert er teflt í tvísýnu, getur Viðskiptaráð ekki annað en fjallað með ítarlegum hætti um innleiðinguna og það sem raunverulega er undir í málinu: EES-samninginn.“

Helstu atriðin sem Viðskiptaráð vill koma á framfæri við Alþingi eru eftirfarandi:

• Viðskiptaráð telur rétt að samþykkja þingsályktunartillöguna, enda styður hún við skilvirkni og samkeppni á raforkumarkaði án þess að skaða að neinu leyti hagsmuni lands og þjóðar.

• Þrátt fyrir að Ísland hafi lagalegan rétt til að hafna innleiðingu EES-gerða eru pólitískar afleiðingar þess hins vegar óljósar og gætu skaðað hagsmuni Íslands.

• Hagsmunir íslensku þjóðarinnar af EES-samningnum vega mun þyngra en óskilgreindir og hugsanlegir annmarkar við innleiðingu orkupakkans.

• EES-innleiðingu hefur aldrei verið hafnað og höfnun á innleiðingu EES-gerða er neyðarúrræði sem verður að meðhöndla sem slíkt.

• Sérhæfing og viðskipti geta hagnast öllum og eru lífsnauðsynleg litlum ríkjum. Það er keppikefli fyrir lítil ríki eins og Ísland að vera eins opin fyrir alþjóðaviðskiptum og mögulegt er.

• EES-samningurinn hefur stuðlað að síauknum samskiptum og viðskiptum Íslands við önnur lönd og er hornsteinn í hagsæld þjóðarinnar.

Að lokum segist Viðskiptaráð vilja leiðrétta þrennt sem hefur komið fram í umræðunni:

1. Þriðji orkupakkinn skyldar ekki íslensk stjórnvöld til að leggja sæstreng.
2. Þriðji orkupakkinn gengur ekki gegn stjórnarskrá og haggar ekki yfirráðum Íslands yfir orkuauðlindum.
3. Orkupakkar 1 og 2 hafa ekki valdið hækkunum á raforkuverði.