Vinstri flokkarnir telja Sósíalistaflokkinn kynda undir verkfallsaðgerðum

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar / Mynd: Sósíalistaflokkurinn.

Verkalýðsfélagið Efling hefur boðað til verkfallsaðgerða á morgun og fimmtudag frá hádegi til miðnættis. Eru það fyrstu dagarnir í boðuðum verkfallsaðgerðum. Komi til verkfalla, sem allt bendir til, mun það hafa mest áhrif á leikskóla- og velferðarþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar auk sorphirðu, vetrarþjónustu og umhirðu borgarlandsins.

Starfsfólk Eflingar telur um 1.850 af um 9000 starfsmönnum borgarinnar. Eflingarfólk  starfar í fjölbreyttum störfum á 129 starfsstöðum hjá Reykjavíkurborg.  Um 1.000 starfa á skóla- og frístundasviði, þar af mikill meirihluti í leikskólunum. Þá starfa um 700 úr Eflingu við velferðarþjónustu borgarinnar, skv. upplýsingum frá Reykjavíkurborg.

Starfsfólk Eflingar í skólum á vegum Reykjavíkurborgar er um 1.000. Ef til vinnustöðvunar kemur mun það fyrst og fremst leiða til skerðingar á þjónustu leikskóla í Reykjavík en þeir eru 63 talsins.

Samkvæmt heimildum Viljans er ekki vilji hjá borgarstjórnarmeirihlutanum til að víkja af þeirri stefnumörkun sem ákveðin var í svonefndum Lífskjarasamningum á síðasta ári. Innan borgarkerfisins er sagt að ítrustu launakröfur Eflingar myndu skila ófaglærðu starfsfólki á leikskólum upp fyrir laun háskólamenntaðra starfsmanna leikskólanna og framkalla þannig óumflýjanlegt höfrungahlaup.

Innan meirihlutans gera menn því jafnframt skóna, að Reykjavíkurborg hafi verið valin af Eflingu og pólitískum samherjum forystu verkalýðsfélagsins hjá Sósíalistaflokki Íslands, til að verða vettvangur pólitískrar kjarabaráttu og með því sé lagður grunnur að kosningabaráttu á vinstri vængnum.

Af þessum sökum hafa forystumenn Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Pírata ekki tekið undir kröfur Eflingar um sérstakar aðgerðir fyrir láglaunakonur, eins og þeir myndu vafalaust hafa gert ef þessir flokkar væru ekki í meirihluta í borgarstjórn.

Veruleg áhrif á leikskólum

Misjafnt er eftir leikskólum hversu mikil skerðingin verður en ljóst er að í mörgum skólum verður hún veruleg. Matarþjónusta verður með ólíkum hætti milli leikskóla. Stjórnendur leikskólanna munu upplýsa forráðamenn leikskólabarna um þá þjónustu sem verður í boði á meðan á verkfallsaðgerðum stendur.

Foreldrar greiða ekki gjöld fyrir þá daga sem börn geta ekki sótt leikskóla vegna verkfalls eða þjónustuskerðingar,s.s. matarþjónustu.

Komi til verkfalls mun það hafa óveruleg áhrif á grunnskóla Reykjavíkur. Skólastjórnendur grunnskóla Reykjavíkur munu upplýsa nemendur og forráðamenn nánar eftir því sem við á.  Þjónusta frístundaheimila verður óbreytt.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri / mynd: Samfylkingin.

Áhrif á velferðarþjónustu

Velferðarsvið sótti um undanþágur frá verkfallsaðgerðum fyrir starfsfólk Eflingar sem sinnir viðkvæmustu þjónustunni er snýr að umönnun fatlaðs fólks, aldraðra á hjúkrunarheimilum og í heimahúsum, barna og þeirra sem þurfa á neyðarþjónustu að halda í gistiskýlum. 

Sótt var um undanþágu fyrir um 245 stöðugildi af um 450 hjá velferðarsviði á eftirfarandi starfsstöðum. Hefur verkalýðsfélagið Efling samþykkt undanþágubeiðnir vegna þessara starfsstaða.

  • Tvö hjúkrunarheimili Droplaugarstaðir (ásamt Foldabæ) og Seljahlíð
  • 13 starfsstaðir þar sem rekið er húsnæði fyrir fatlað fólk (íbúðakjarnar og herbergjasambýli)
  • Sex starfsstaðir sem sinna málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
  • Nauðsynleg öryggisþjónusta á heimilum
  • Þjónustuíbúðir á fimm stöðum
  • Framleiðslueldhús Lindargötu sem sér um að elda og pakka heimsendum mat.
  • Vistheimilið Mánaberg

Fyrirhugað verkfall mun t.a.m. hafa þau áhrif á velferðarþjónustu borgarinnar að ekki verður boðið upp á mat og kaffiveitingar í níu félagsmiðstöðvum fyrir aldraða auk þess sem heimaþjónusta á borð við þrif frestast á verkfallsdögum. Dagdvöl fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum sem rekin hefur verið í Þorraseli mun loka en þar eru að jafnaði 40 einstaklingar sem njóta þjónustunnar. Þá mun ekki verða hádegismatur í boði fyrir fatlað fólk sem starfar og dvelur í Iðjubergi og Gylfaflöt.

Sorphirða og umhirða borgarlands

Á boðuðum verkfallsdögum mun sorphirða frestast. Þá verður hreinsun í kringum grenndarstöðvar ekki sinnt auk ýmissar umhirðu í borgarlandinu.  Öryggis- og bilanavakt borgarlandsins fellur niður. Snjóhreinsun og hálkuvarnir á aðskildum hjólaleiðum og stofnanalóðum, t.d við leik og grunnskóla fellur enn fremur niður.

Boðaðar verkfallsaðgerðir Eflingar

– Þriðjudagur 4. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.

– Fimmtudagur 6. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

– Þriðjudagur 11. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.

– Miðvikudagur 12. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

– Fimmtudagur 13. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

– Mánudagur 17. febrúar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótímabundið eftir það.