Stuðningur við starf æskulýðsfélaga vegna COVID-19

Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað 50 milljónum kr. til æskulýðsfélaga sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni. Styrkir eru veittir vegna tekjutaps þar sem hætt hefur verið við viðburði, mót eða félög hafa þurft að skerða starfsemi vegna áhrifa COVID-19.

„Æskulýðsstarf hefur ótvírætt forvarna- og menntunargildi og það er markmið okkar að tryggja jöfn tækifæri til þátttöku að slíku starfi. Þar starfa börn og ungmenni í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Það er mikilvægt veganesti fyrir þau og samfélagið allt,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, í frétt á vef ráðuneytisins.

Styrkirnir skiptast svo:

Sumarbúðir KFUK Vindáshlíð1.500.000
Núll prósent hreyfingin200.000
Taflfélag Vestmannaeyja200.000
AFS á Íslandi7.000.000
KFUM og KFUM2.500.000
Skógarmenn KFUM3.000.000
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni3.000.000
Bandalag íslenskra skáta5.000.000
KFUM og KFUK Akureyri350.000
Taflfélag Reykjavíkur1.520.000
Samfés4.000.000
Ungmennafélag Íslands /ungmennabúðirnar á Laugum5.000.000
Landssamband ungmennafélaga4.700.000
JCI Íslands250.000
Víkingaklúbburinn/skákfélag100.000
Stúdentaráð Háskóla Íslands300.000
Veraldarvinir2.500.000
Ungir umhverfissinnar300.000
Skátafélagið Skjöldungar600.000
Landssamtökin Þroskahjálp700.000
Ölver sumarbúðir1.500.000
Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF4.000.000
Samtök ungra bænda200.000
Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS)1.000.000
Skátafélagið Kópar500.000
JCI Reykjavík80.000