Marg­ar fær­ustu fjöl­miðlakon­ur lands­ins komust ekki áfram eft­ir fyrsta viðtal

„Það er meir en ald­ar­fjórðung­ur síðan Hæstirétt­ur kvað jafn­rétt­is­lög þýðing­ar­lít­il nema meg­in­regl­ur væru skýrðar svo að veita skyldi konu starf ef hún er að minnsta kosti jafnt að því kom­in hvað varðar mennt­un og annað sem máli skipt­ir og karl­maður sem við hana kepp­ir ef á starfs­sviðinu eru fáar kon­ur. Í níu­tíu ára sögu rík­is­út­varps­ins hef­ur eng­in kona gegnt stöðu út­varps­stjóra. Ell­efti karl­inn var ráðinn út­varps­stjóri í vik­unni and­spæn­is flóru fremstu fjöl­miðlakvenna lands­ins.“

Þetta segir dr. Herdís Þorgeirsdóttir mannréttindalögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri og útgefandi í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag, en hún var meðal umsækjenda um stöðu útvarpsstjóra. Ráðið var í starfið í vikunni og hlaut Stefán Eiríksson borgarritari og fv. lögreglustjóri á endanum hnossið.

„Þegar staðan var aug­lýst laus til um­sókn­ar var kraf­an um konu í stól út­varps­stjóra orðin tif­andi tímasprengja. Yrði karl tek­inn um­fram konu í stöðuna þyrfti hann að hafa aug­ljósa yf­ir­burði á þeim sviðum sem gerð voru að skil­yrði.

Marg­ar fær­ustu fjöl­miðlakon­ur lands­ins sóttu um starfið en eng­in þeirra komst áfram eft­ir fyrsta viðtal. Þrír karl­ar og ein kona rötuðu í loka­úr­takið.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins.

Kon­ur sem eiga að baki ára­tuga reynslu sem rit­stjór­ar, frétta­stjór­ar, út­gef­end­ur, dag­skrár­gerðar­menn, frétta­menn, rit­höf­und­ar, fræðimenn og stjórn­end­ur hljóta að spyrja hvað hafi legið til grund­vall­ar val­inu í loka­úr­takið því ekki voru það hæfn­is- og kynja­sjón­ar­mið. Auk þess var kraf­an um sann­gjarnt og gagn­sætt ráðning­ar­ferli að engu höfð.

Svo virðist sem stjórn rík­is­út­varps­ins hafi mark­visst úti­lokað þess­ar kon­ur á loka­metr­un­um til að forðast óhag­stæðan sam­an­b­urð við þann sem ráðinn var í því skyni að hindra jafn­réttiskær­ur.

Eft­ir stend­ur ein spurn­ing sem beint er til stjórn­ar rík­is­út­varps­ins:

– Hvaða um­fram-hæfn­isþætt­ir og yf­ir­burðir réðu ráðningu ell­efta karls­ins í stöðu út­varps­stjóra?“ segir Herdís ennfremur í grein sinni.