Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, leggst gegn kaupum Landsbankans á TM Tryggingum (Tryggingamiðstöðinni) sem skýrt var frá í gær og gerir þá kröfu til samstarfsflokkanna í ríkisstjórn, að einkavæðing Landsbankans verði þegar sett af stað, ef kaupin á tryggingafélaginu ganga ekki til baka.
„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að stjórnvöld muni halda áfram að draga úr eignarhaldi ríkisins í fjármálakerfinu og nýta fjármuni sem liggja í slíkum rekstri í uppbyggingu innviða. Eigendastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki er samhljóða og þar er meðal annars kveðið á um stuðla skuli að samkeppni í fjármálastarfsemi. Ég hef lagt mikla áherslu á að þessari stefnu sé fylgt eftir og á næstu dögum mæli ég fyrir um frumvarp um sölu eftirstandandi hlutar ríkisins í Íslandsbanka.
Þrátt fyrir allt þetta mun Landsbankinn, sem er í tæplega 100% í eigu ríkisins en eigendastefna kveður á að draga eigi úr eignarhaldi ríkisins þar, að óbreyttu stækka og stíga afgerandi inn á nýjan markað með kaupum á stóru fyrirtæki á markaði, TM.
Ríkisfyrirtæki á ekki að kaupa tryggingafélag. Ríkið á að losa um tugi milljarða og umbreyta þeim í samfélagslega innviði sem almenningur nýtur góðs af og byggir undir frekari verðmætasköpun og samkeppnishæfni allra landshluta. Kröftum okkar er betur borgið í öðrum fjárfestingum en í tryggingastarfsemi, sem af mér vitandi enginn hefur kallað eftir að sé í ríkisrekstri.
Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða. Ég hef óskað skýringa á málinu frá Bankasýslu ríkisins sem heldur um eignarhluti ríkisins í bankanum og setur almenn viðmið um áherslur í rekstri auk þess að fylgja eftir eigendastefnu ríkisins,“ segir fjármálaráðherra í færslu á fésbókinni.
Óvíst er hvort ummæli ráðherrans breyta einhverju í málinu, enda armslengd milli ráðherra og bankasýslunnar sem fer með eignarhluti ríkisins í bönkunum. Þar á ofan starfar svo sjálfstæð stjórn í Landsbankanum.
Þá er kveðið á um í eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum, að ekki verði ráðist í sölu á hlutum í Landsbankanum fyrr en allt hlutafé í Íslandsbanka hefur verið selt. Til stendur að gera það í tveimur tilraunum á yfirstandandi kjörtímabili.