Svandís og Þórdís á trúnó um stórfurðulega stöðu í íslenskum stjórnmálum

Þær sátu lengi saman á ráðherrabekk, Svandís og Þórdís. Hér við setningu Alþingis nýverið. / Alþingi, Eyþór Árnason.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra eru óvenju hreinskilnar og hispurslausar um stöðu stjórnarflokkanna í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum.

Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú, hræðsluna við að toppa of snemma, átökin um vinstri og hægri, skattamál og baráttu VG fyrir lífinu hvorki meira né minna.

Trúnó og greiningar á dýptina sem áhugafólk um stjórnmál ætti ekki að missa af.