Mikið fjölmenni á fundum um orkupakkann — Myndband

Vel á fimmta hundrað gestir sóttu tvo opna og þverpólitíska fundi sem Miðflokksfélag Suðurkjördæmið stóð fyrir í vikunni á Selfossi og í Reykjanesbæ.

Auk þess hefur mikill fjöldi fólks horft á upptökur af fundinum eða beint streymi af þeim á Netinu.

„Þessi mikli áhugi á fundunum sýnir svo ekki verður um villst að málefnið varðar þjóðina miklu og að það er þung og mikil undiralda í þjóðfélaginu vegna stöðu málsins á Alþingi Íslendinga,“ segir í tilkynningu frá stjórn félagsins sem Viljanum hefur borist.

Frummælendur voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Frosti Sigurjónsson, Ingibjörg Sverrisdóttir, Styrmir Gunnarsson og Ögmundur Jónasson.

Posted by Miðflokkurinn on Fimmtudagur, 22. ágúst 2019