Átök í samfélaginu þegar ákveða þarf hverjum á að bjarga og hverjum ekki

Viðskiptaritstjórar Fréttablaðsins og Morgunblaðsins segja að fæstir geri sér grein fyrir því hve staðan í íslensku atvinnulífi sé alvarleg. Framundan sé blóðugur tími, þar sem tugþúsundir missi vinnuna, mörg fyrirtæki verði gjaldþrota og átök verði í samfélaginu þegar fjármálastofnanir þurfi að ákveða hverjum skuli bjargað og hverjum ekki.

Í Hlaðvarpi Viljans ræða þeir Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson við Björn Inga Hrafnsson um uppgjörið sem framundan er. Samstarf ríkisstjórnarflokkanna sé tekið að súrna, velta þurfi því upp hvernig Icelandair verði bjargað í samstarfi ríkisins, kröfuhafa og hluthafa og sá möguleiki verði skoðaður að setja félagið í þrot í núverandi mynd og reisa nýtt félag á nýrri kennitölu. Ekki sé hægt að reka félagið áfram með núgildandi kjarasamningum við áhafnir flugvéla fyrirtækisins.

Þeir segja happ að forsvarsmönnum nýja flugfélagsins Play hafi ekki tekist að koma því í loftið áður en Kórónuveirufaraldurinn skall yfir og rústaði flugsamgöngum í heiminum.

Opinberir starfsmenn þurfi að sæta einhverjum kjaraskerðingum til framtíðar eigi ekki að verða tvær þjóðir í landinu og grípa verði til niðurskurðar í opinberum rekstri.

Það er sannarlega ekki björt mynd sem dregin er upp af íslensku viðskiptalífi í þessu viðtali, en það er engu að síður skylduáhorf fyrir alla þá sem láta sig málefni atvinnulífsins, efnahagslífsins og vinnumarkaðins varða. Að ekki sé talað um atvinnurekendur og starfsfólk fyrirtækjanna í landinu.