Út úr kófinu – heilsa, efnahagur og stjórnmál –– upptaka af fundinum

„Út úr kófinu – heilsa, efnahagur og stjórnmál“ var yfirskrift málþings sem efnt var til í Háskóla Íslands í dag. Þar ræddu sérfræðingar innan og utan Háskólans leiðina út úr COVID-19-faldrinum og áhrif opnunar landmæra Íslands út frá lýðheilsu- og efnahagssjónarmiðum en einnig hvaða áhrif samkomubann stjórnvalda getur haft á afmarkaða þjóðfélagshópa, ekki síst börn.

Sérstakur gestur á fundinum var Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Dagskrá útsendingarinnar:
Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómalækningum, er fundarstjóri.

13.00 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands – Opnunarávarp

13.05 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir – „Leiðir út úr COVID-19: sóttvarnasjónarmið“

13.25 Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir – „Næstu skref – sýn smitsjúkdómalæknis“

13.45 Urður Njarðvík, prófessor í sálfræði: „Með storminn í fangið: Áhrif samkomubanns á líðan barna með ADHD og foreldra þeirra“

20 mínútna kaffihlé 14.05-14.25

14.25 Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði: „Er opnun landamæra forsenda efnahagsbata?“

14.45 Tómas Brynjólfsson, hagfræðingur og skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu: „Hagstjórn í takmörkuðu skyggni“

15.05 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra: „Hugleiðingar um faraldur“