Eftir Olgu Kristrúnu Ingólfsdóttur:
Framundan eru kosningar til stjórnar SÁÁ. Tveir listar í framboði. Hart er sótt að Þórarni Tyrfingssyni, sem gefur kost á sér til formanns. Ekki þarf að tíunda hér hve Þórarinn á mikinn þátt í því öfluga starfi sem SÁÁ hefur unnið, allt frá 1980.
Dapurlegt er að lesa eða hlusta á þá sem nú níða Þórarinn í aðdraganda aðalfundar SÁÁ. Auðvitað er hann ekki fulkominn, en störf hans í þágu SÁÁ hafa átt mestan þátt í því að gera SÁÁ að öflugum meðferðarsamtökum, sem vakið hafa athygli víða í Evrópu og Ameríku.
En það virðist ekki nóg að níða skóinn af Þórarni af hálfu þeirra sem standa að formannsframboði Einars Hermannssonar.
Morgunblaðið tók viðtal við Sigurður Friðriksson, fyrrum stjórnarmann í SÁÁ, þar sem hann flytur ósannindi um varðandi starfslok eiginkonu Arnþórs Jónssonar, framkvstj. SÁÁ.
Er þetta einungis sýnishorn af þeim ósannindum sem félögum í SÁÁ er birt í undanfara kosninganna ?
Morgunblaðið hefur nú birt leiðréttingu á þessum fullyrðingu Sigurðar. Sigurður hefur hins vegar ekki beðist afsökunar.
Hvernig væri að Sigurður bæðist afsökunar á þessum uppdiktuðu fullyrðingum sínum?
Undirrituð er stuðningsmaður Þórarins.