Lærdómur eftir langa ævi: Ekki leita hamingjunnar hjá öðrum

Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson:

Eftir að hafa lifað langa ævi tel ég mig hafa lært eftirfarandi sannindi: Ekki leita hamingjunnar hjá öðrum.

Leitið hennar í sjálfum ykkur með því að breyta ávallt rétt að ykkar eigin mati. Hlustið á skoðanir annarra en ekki láta þær ráða skoðunum ykkar fyrr en þið hafið að yfirveguðu ráði lagt mat á þær.

Munið líka að lífshamingjan er ekki fólgin í að sækjast eftir ríkidæmi og völdum. Hún er fólgin í ástinni og þá fyrst og fremst á þeim sem næstir ykkur standa, oftast maka ykkar og börnum.

Leyfið ykkur sjálfum að sofna að kvöldi sátt við afstöðu ykkar og gjörðir á deginum sem liðinn er. Þá mun svefninn veita ykkur hvíld og styrk til að fást við verkefni næsta dags.

Höfundur er fv. lögmaður og hæstaréttardómari.