Þolendur gengust ekki í ábyrgð fyrir mannorð gerenda sinna

#MeToo er tveggja ára nú í október. Ýmislegt hefur gengið á síðan hreyfingin fór af stað. Mynd/Wikipedia

VILJANUM HEFUR BORIST SVOFELLD YFIRLÝSING FRÁ #METOO KONUM:

Að gefnu tilefni viljum við minna á hver tilgangur #metoo-byltingarinnar er.

Tilgangurinn er að konur finni kraftinn í fjöldanum og geti sameinast um að afhjúpa aldagamalt misrétti sem blasir alltof víða við, misrétti sem er viðhaldið með úreltum viðhorfum, meðvirkni með þeim sem misnota vald sitt, þolendasmánun og þöggun. Öldum saman hafa konur þurft að bera harm sinn í hljóði ef þeim er mismunað, þær beittar ofbeldi eða áreittar á vinnustað, almannafæri eða jafnvel á heimili sínu. Þær hafa verið látnar axla ábyrgðina og bera skömmina, með þeim skilaboðum að hefðu þær nú bara hegðað sér öðruvísi/klætt sig á annan hátt/dregið skýrari mörk/gætt sín betur, þá hefðu þær afstýrt gjörðum gerandans. Þessi hugsunarháttur leysir gerendur undan ábyrgð og þaggar niður í þolendum, en hvort tveggja auðveldar ofbeldismönnum að komast óáreittir upp með iðju sína.

            Þeir brotaþolar sem stigið hafa fram og sagt frá hafa í mörgum tilvikum þurft að gjalda fyrir það dýru verði, með atvinnumissi, ærumissi og hafa jafnvel hrakist úr heimabyggð sinni. Með tilkomu #metoo byltingarinnar gátu konur myndað breiðfylkingu og vakið athygli á þessu óásættanlega ástandi í krafti fjöldans. Þær þurftu ekki lengur að standa einar og berskjaldaðar með frásagnir sínar og mæta fordæmingu og skömm, heldur gátu þær valið um að segja frá reynslu sinni nafnlaust eða láta nægja að nota fimm stafa myllumerki, sem sagði allt sem segja þurfti.

            Með þátttöku sinni í #metoo gengust þolendur ekki í ábyrgð fyrir mannorð gerenda sinna. Þær bera ekki ábyrgð á ákvörðunum þeirra sem kusu að áreita þær eða beita þær ofbeldi, né tilfinningum þeirra eða starfsframa. Brotaþolum ber engin skylda til að fara fyrir fjölmiðla eða dómstóla, kjósi þeir fremur að leita einslega til trúnaðarmanns eða yfirmanns, séu þær áreittar af samstarfsmanni. Þær eiga rétt á öruggu starfsumhverfi, þar sem mannréttindi þeirra eru virt og þær metnar að verðleikum. Að sama skapi þurfa atvinnurekendur að hafa svigrúm til að bregðast við ásökunum um ofbeldi eða áreitni án þess að fyrir liggi dómur. Fátt myndi ávinnast ef sakfellingardómur væri eina forsenda þess að segja upp starfsmanni sem brýtur gegn samstarfsfólki sínu, enda er réttarkerfið önnur brotalöm þegar ofbeldi gegn konum er annars vegar. Auk þess gefur auga leið að sakfelling getur einungis átt sér stað í kjölfar brots og gagnast því ekkert við að fyrirbyggja ofbeldi.

            Þá skorum við á fjölmiðlafólk að vanda umfjöllun um þessi mál og birta ekki fréttir sem gera aðför að einstökum þolendum, þar sem þeir eru vændir um lygar. Fjölmiðlar eiga ekki að vera gjallarhorn fyrir þá sem hafa beina hagsmuni af því að rýra trúverðugleika þolenda. Við lýsum yfir stuðningi við þá hugrökku brotaþola sem rofið hafa þögnina og þá atvinnurekendur sem standa við bakið á þeim. Líf, geðheilsa og starfsframi kvenna er ekki lengur ásættanlegur fórnarkostnaður á atvinnumarkaði sem hefur hylmt yfir með gerendum frá örófi alda. Þeirri skömm var skilað í #metoo byltingunni.

Virðingarfyllst,

Anna Lind Vignisdóttir

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir

Drífa Snædal

Edda Ýr Garðarsdóttir

Elísabet Ýr Atladóttir

Elva Hrönn Hjartardóttir

Erla Hlynsdóttir

Fríða Rós Valdimarsdóttir

Guðrún Helga Sigurðardóttir

Guðrún Línberg Guðjónsdóttir

Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir

Halldóra Jónasdóttir

Halla B. Þorkelsson

Heiða Björg Hilmisdóttir

Hlíf Steinsdóttir

Kolbrún Dögg Arnardóttir

Kolbrún Garðarsdóttir

Kristín I. Pálsdóttir

Marta Jónsdóttir

Myrra Leifsdottir

Nichole Leigh Mosty

Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir

Ósk Gunnlaugsdóttir

Sigrún Jónsdóttir

Silja Bára Ómarsdóttir

Stefanía Svavarsdóttir

Steinunn Ýr Einarsdóttir

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

Þórlaug Ágústsdóttir