Verðtryggingin er 40 ára: Frumvarpið samið við eldhúsborð ráðherrans

Myndin sýnir annað ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar - 1. september 1978 - 15. október 1979.

Eftir dr. Ásgeir Jónsson:

Það hefur ekki farið hátt – en verðtryggingin á nú 40 ára afmæli. En þann 15. mars 1979 lagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra fram lagafrumvarp sem m.a veitti heimild til verðtryggingar; Ólafslög. Sagt er að hann hafi sjálfur samið lögin við eldhúsborðið heima hjá sér á Aragötu – sem í þann tíma var kölluð prófessoragatan.

Óðaverðbólgan hófst eftir 1972 – þegar Bretton-Woods fastgengiskerfið hrundi sem var akkeri í íslenskrar hagstjórnar. Þá var landhelgin færð út og skuttogarar komu fram. Leiddi það til gríðarlegs vaxtar í sjávarútvegi. Upp úr þessu hófst víxlverkun launahækkana og gengisfellinga – samhliða agaleysi í hagstjórn.

Dr. Ólafur Jóhannesson var m.a. lagaprófessor, dómsmálaráðherra og forsætisráðherra auk þess að vera formaður Framsóknarflokksins.

Verðbólgan stóð í 40% þegar Ólafslög komu fram – og hækkaði eftir samþykkt þeirra til 1983 er hún sló í 100%. Vextir voru ákveðnir af stjórnmálamönnum og fylgdu ekki verðbólgu. Raunvextir voru því -20% nær allan áttunda áratuginn. Ávöxtun lífeyrissjóðanna var enn verri, eða allt að -40%.

Áhrifamiklir hópar högnuðust á neikvæðum raunvöxtum – s.s. helstu stórfyrirtæki landsins og hin fjölmenna ´68 kynslóð – hvers húsnæðis- og námslán brunnu upp. Á sama tíma tapaði önnur kynslóð ævisparnaði sínum – sem síðar olli (skammarlegri) fátækt eldra fólks.

Ólafslögin skiptu samt sköpum – því um leið og raunvextir hættu að vera neikvæðir hagnaðist enginn af hárri verðbólgu. Það breytti hinu pólitíska landslagi. Að lokum kallaði það stjórnvöld til raunverulegra aðgerða.

Fyrsta skrefið var tekið árið 1983 þegar stjórnvöld lýstu yfir fastgengi og afnámu vísitölutengingu launa, en þá lækkaði verðbólgan niður í 20–30%.

Lokahnykkur var 1989 með festingu krónunnar við körfu gjaldmiðla – eða de facto þýska markið sem flestar evrópumyntir voru þá tengdar við. Og síðan Þjóðarsátt á vinnumarkaði 1990. Gekk þá verðbólgan niður á 2-3 árum.

Dr. Ásgeir Jónsson hagfræðingur.

Er líklega leitun að öðrum jafn áhrifaríkum ritverkum íslenskum sem samin hafa verið við eldhúsborð en Ólafslög!

Færri vita þó þau að Óiafur hafði áður reynt að koma á verðtryggingu árið 1974 — þær tillögur sprengdu ríkisstjórnina þar sem Samtök frjálslyndra og vinstri manna lögðust gegn þeim.

Höfundur er forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands.