Á köldum vetrarmorgni er rannsóknarlögreglan kölluð út að Hólavallagarði. Innan um þá sem þar hafa verið lagðir til hinstu hvílu finnst lík eldri konu og fljótt er ljóst að dauðdaga hennar hefur borið að með saknæmum hætti. Hver getur hafa átt eitthvað sökótt við þessa eldri konu sem virðist hafa verið hlédræg, vanaföst og einförul?
Um það snýst Miðillinn, æsispennandi saga úr smiðju Sólveigar Pálsdóttur. Þetta er áttunda bók Sólveigar, en hún er auðvitað margverðlaunaður og vinsæll rithöfundur, hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra og var hún jafnframt framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Sama ár var Sólveig valin bæjarlistamaður Seltjarnarness, fyrst rithöfunda. Sólveig hefur tvívegis verið tilnefnd til verðlauna hjá Storytel. Bækur hennar hafa komið út á ensku og þýsku.
„Þegar rannsókninni miðar áfram er greinilegt að ekki var allt sem sýndist í lífi konunnar og Guðgeir Fransson og teymi hans eiga fullt í fangi með að leysa þetta dularfulla mál sem meðal annars leiðir þau á miðilsfundi og djúpt í þyrnum stráða fortíð fórnarlambsins,“ segir í káputexta og lesendur geta farið að hlakka til þess að kúra undir teppi í skammdeginu með góða bók.