Út er komin hjá Veröld spennusagan Blóðbönd eftir þá Roslund og Thunberg.
Fjórtán ára gamall drengur hreinsar blóði drifna forstofuna heima hjá sér eftir að faðir hans hafði misþyrmt móður hans. Hann þarf nú að sjá um yngri bræður sína tvo meðan faðirinn er í fangelsi og móðirin liggur á spítala. Neyðin rekur hann út í fyrsta ránið sem hann fremur. Og þau eiga eftir að verða fleiri.
Mörgum árum síðar er honum sleppt úr fangelsi. Hann hefur greitt skuld sína við samfélagið – en hann á sér draum: að framkvæma hið fullkomna rán og komast yfir gífurlega fjármuni. Sér til trausts og halds hefur hann bróður lögreglumannsins sem kom honum í fangelsi. Æsispennandi atburðarás fer af stað – en margt fer á annan veg en hann hafði hugsað sér.
Þeir Roslund og Thunberg hafa slegið í gegn og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir bók sína Dansað við björninn sem var m.a. tilnefnd til The International Daggar Award sem besta evrópska spennusagan.
„Vel skrifuð og grípandi spennusaga sem veitir lesandanum bæði högg í höfuð og maga,“ sagði meðal annars í Litteratursiden, Danmörku. New York Journal of Books, Bandaríkjunum, sagði: „Blóðbönd er ekki bara frábær spennusaga heldur er hún einnig einstök saga um tengsl innan fjölskyldu og afleiðingar heimilisofbeldis … Mæli eindregið með bókinni.“ Og Dagens Nyheter í Svíþjóð sagði: „Harmleikur sem minnir á Guðföðurinn þar sem eitruð fjölskyldubönd leika stórt hlutverk.“
Blóðbönd er 540 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Eric Thunfors hannaði kápu. Bókin er prentuð í Lettlandi.