Síðan þú fórst hafa aðeins tárin strokið kinnar mínar

Ljóðskáldið Valdimar Tómasson er öllum bókaunnendum að góðu kunnur. / Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Einlæg og sársaukafull ljóð Valdimars Tómassonar hafa snortið hjartastrengi og notið vinsælda allt frá því fyrsta bók hans kom út.

Meitlaðar myndir hans, oft innblásnar af óblíðri náttúru, eru myrkar og fagrar í senn og sjálfur dauðinn er aldrei langt undan.

Nú hefur Forlagið gefið út ljóðasafn skáldsins, sem er skyldueign á hverju menningarheimili, eins og eitt sinn var sagt.

Síðan þú fórst
hafa aðeins tárin
strokið kinnar mínar.
Og vægðarlaust myrkrið
vaggað mér í svefn.

Hér eru saman komnar allar ljóðabækur Valdimars: Enn sefur vatnið (2007), Sonnettugeigur (2013), Dvalið við dauðalindir (2017) og Vetrarland (2018). Það er fengur að þessu safni fyrir bæði aðdáendur Valdimars og þá sem enn eiga eftir að kynnast ljóðum hans.

Guðmundur Andri Thorsson ritar formála.