Örstutt reglugerð sem öllu breytir

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Það var létt yfir mannskapnum á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Safnahúsinu við Hverfisgötuna nú undir hádegið. Um tímamótafund var enda að ræða, þar sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafði þá nýlokið við að skrifa undir örstutta reglugerð sem hefur samt gríðarlega mikil áhrif á samfélagið allt. Bæði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra óskuðu enda Íslendingum til hamingju með daginn.

Reglugerðin hljóðar svo:

Þetta þýðir að ráðherrann, hefur með fulltingi ríkisstjórnarinnar eftir fund hennar í morgun, ákveðið að frá og með 26. júní næstkomandi falli úr gildi allar takmarkanir á samkomum innanlands. Í þessu felst m.a. fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. Við Íslendingar erum þannig fyrst Evrópuþjóða til að stíga slíkt skref, hvorki meira né minna. Það er auðvitað áhætta, en líka gríðarlega stórt skref í átt að því samfélagi sem áður áttum fyrir faraldurinn.

„Í raun erum við að endurheimta á ný það samfélag sem okkur er eðlilegt að búa í og sem við höfum þráð, allt frá því að heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur voru virkjaðar vegna heimsfaraldurs fyrir rúmu ári, þann 16. mars 2020“ segir heilbrigðisráðherra. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þann 1. júlí taka gildi breyttar reglur varðandi sýnatökur á landamærum.

Fram kemur í göngum frá heilbrigðisráðuneytinu, að um 87% þeirra sem áformað er að bólusetja hafi nú fengið a.m.k. eina sprautu, um 60% eru fullbólusett gegn Covid-19 og nú ættu öll sem ekki var áður búið að bjóða bólusetningu að hafa fengið slíkt boð.

Óþarft er að rekja í löngu máli, að fordæmalausar takmarkanir innanlands vegna Covid-19 hafa verið í gangi hér á landi eftir stöðunni hverju sinni. Nándarregla og fjöldatakmarkanir hafa verið viðvarandi allt tímabilið, grímuskylda í einhverri mynd hefur gilt um langa hríð. „Takmarkanirnar hafa gert það að verkum að allri mögulegri starfsemi hefur verið þröngt sniðinn stakkur og á tímabilum legið alveg niðri. Menningarlíf, íþróttastarf, skólastarf, veitingarekstur, ferðaþjónusta og fjölmargt annað hefur markast af gildandi reglum um samkomutakmarkanir á hverjum tíma. Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um afléttingu allra samkomutakmarkana verða reglur um samkomur ekki háðar öðrum takmörkunum en almennt gilda í samfélaginu og giltu áður en heimsfaraldurinn skall á,“ segir í glaðbeittri tilkynningu frá ráðuneytinu.

Hvað landamærin áhrærir hefur verið ákveðið að hætta að skima börn og fólk með vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnareglum á landamærum sem taka gildi 1. júlí og gilda til 15. ágúst. Þessar breytingar eru einnig í samræmi við minnisblað sóttvarnalæknis. Þann 1. júlí verður sýnatökum hætt hjá þeim sem framvísa gildum vottorðum um bólusetningu með bóluefnum sem Lyfjastofnun Evrópu og/eða WHO hafa viðurkennt. Bólusetning telst gild tveimur vikum eftir að hlutaðeigandi fékk síðari skammt bóluefnis, en hafi fólk verið bólusett með bóluefni Janssen þarf ein vika að hafa liðið frá bólusetningu. Sýnatöku verður hætt hjá börnum sem fædd eru 2005 eða síðar.

Þau sem framvísa gildum vottorðum um bólusetningu og fyrri sýkingu af völdum Covid-19 og börn fædd 2005 og síðar þurfa ekki að framvísa neikvæðum PCR-vottorðum við komuna til landsins frá og með 1. júlí.
Í tilvikum þeirra sem ekki geta framvísað gildum vottorðum um bólusetningu gegn Covid-19 eða fyrri Covid-19 sýkingu þarf áfram að framvísa neikvæðu PCR-vottorði við byrðingu og á landamærum, undirgangast skimun með PCR-prófi við komuna til landsins og dvelja í sóttkví í 5 daga og undirgangast seinni skimun að henni lokinni.

Ég tók eftir því að Þórólfur sóttvarnalæknir Guðnason sagði í viðtölum eftir fundinn, að hann vilji alls ekki vera „leiðinlegi gæinn í partýinu“ en samt sé ástæða til að minna á að þetta sé ekki búið, þótt staðan sé góð og ástæða til að gleðjast. Líklega hafði hann þar í huga að Ísrael varð að setja aftur á grímuskyldu í dag vegna nýrrar bylgju, en þar í landi er líka búið að bólusetja mikinn meirihluta þjóðarinnar og afnema margskonar takmarkanir.

Þetta er því ekki búið. En dagurinn í dag markar risastór tímamót og þótt viðbúið sé að einhverjar minniháttar hópsýkingar geti enn dúkkað upp, er ekkert sem bendir til að þær muni lama allt samfélagið. Við kunnum orðið leiðir til að einangra smitin, rekja þau og koma í veg fyrir útbreiðslu.

Sá sem hér heldur á penna hefur mætt á vel á annað hundrað upplýsingafundi og spurt nálega eitt þúsund spurninga. Fyrst og fremst fyrir hönd almennings, sem hefur verið ótrúlega duglegur að koma með hugmyndir og ábendingar. Fyrir það skal þakkað um leið og þess er óskað, að vonandi verði ekki þörf á fleiri upplýsingafundum. Vonandi er þessi ótrúlegi tími að baki. Vonandi er skjót endurreisn framundan og betri tíð. Vonum það og vöndum okkur, til dæmis með því að þvo okkur um hendurnar og fara varlega. Njótum þess sem næstu vikur og mánuðir hafa upp á að bjóða.

Við eigum það öll skilið.

Björn Ingi er ritstjóri Viljans.