Algerlega andstætt þjóðarhagsmunum og hagsmunum almennings

„Vandinn við þetta mál er sá, að það er eru ekki öll kurl komin til grafar. Meðan ekki er sæstrengur, stöndum við einfaldlega fyrir utan orkumarkað Evrópu. Í núinu er þetta mál okkur því óviðkomandi. En handan við hornið eru fjárfestar, erlendir og innlendir samstarfsmenn þeirra, sem eygja mikla gróðamöguleika í gegnum sæstrenginn,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson fv. utanríkisráðherra í samtali við Viljann aðspurður um þá samþykkt Miðstjórnar Framsóknarflokksins að hafna innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins og óska eftir undanþágu frá hinum sameiginlega orkumarkaði í EES-samstarfinu.

Andstaða Jóns Baldvins við innleiðinguna hefur vakið mikla athygli, enda fer hann langt með að teljast faðir EES-samningsins hér á landi, þar eð hann var utanríkisráðherra þegar við gerðumst aðilar að honum.

Jón Baldvin hefur varað við því að rafmagnsverð hér á landi geti stórhækkað með innleiðingu orkupakkans. Hann skýrir það svo:

„Með sæstrengnum tengjumst við orkumarkaði Evrópu og lútum hans regluverki og stjórnsýslu. Þá er hætt við, að eftirleikurinn sé tapaður. Þá snýst málið um orkufyrirtæki  í framleiðslu og dreifingu í ríkisrekstri með ráðandi markaðshlutdeild –  gegn kröfunni um einkavæðingu. Í einkavæðingunni felst gróðavon fjárfestanna. Það væri algerlega andstætt íslenskum þjóðarhagsmunum og hagsmunum almennings. Þar liggur hundurinn grafinn.“

Hann segist hafa miklar áhyggjur af Sjálfstæðisflokknum í málinu:

„Ég veit, að innan Sjálfstæðisflokksins eru sterk öfl, sem eygja mikil gróðatækifæri í þessari einkavæðingu — eins og venjulega með því að öðlast skylduáskrift að tekjum almennings. Enn sem komið er, eru þeir í felum. Þetta er þeirra aðal gróðavon: síminn, fjarskiptin, orkan, vatnið, fiskurinn og þannig mætti áfram telja. Takist þeim þetta, verður Ísland endanlega orðið að bananalýðveldi í Suður-amerískum stíl — verstöð í eigu nokkurra auðklíkna og undir þeirra stjórn.“

Hvar slær hjarta Framsóknar þá?

Jón Baldvin segir áhættuna einfaldlega of mikla: 

„Það er of mikil  áhætta að rétta þeim litla fingurinn, með því að innleiða pakkann nú og sjá svo til með sæstrenginn seinna. Sá sem réttir Skrattanum litla fingurinn, missir venjulega höndina. Ríkisstjórnin er vafalaust undir ofurþrýstingi frá Norðmönnum um að spilla ekki norskum þjóðarhagsmunum í þessu máli. Þeir fara ekki saman við íslenska þjóðarhagsmuni.

Hvar slær hjarta Framsóknar þá? Það þekkir þú betur en ég,“ segir Jón Baldvin ennfremur.