Allt stefnir í viðræðuslit og verkfallsaðgerðir í byrjun mars

„Stéttarfélögin fjögur sem leitt hafa yfirstandandi kjaraviðræður, VR, Efling, VLFA og VLFG, lýsa reiði og sárum vonbrigðum með þær tillögur sem ríkisstjórnin lagði fram á fundi með forseta og varaforsetum ASÍ í dag, 19. febrúar,“ segir í yfirlýsingu sem forystumenn félaganna hafa sent frá sér.

Samkvæmt heimildum Viljans er vilji til þess innan verkalýðsfélaganna að slíta viðræðum við Samtök atvinnulífsins nk. fimmtudag og fara fram á verksfallsheimild hjá félagsmönnum í einstökum félögum. Slíkar verkfallsaðgerðir gætu þá hafist í byrjun marsmánaðar.

Í yfirlýsingunni segir ennfremur:

„Viðræður hafa staðið tæpt eftir að SA lögðu fram tilboð í síðustu viku sem leitt hefði til kaupmáttarrýrnunar fyrir stóra hópa launafólks. SA höfnuðu í kjölfarið sanngjörnu gagntilboði samflotsfélaganna.

Vonir stóðu til að aðkoma stjórnvalda gæti hleypt glæðum í viðræður. Ljóst er að tillögur stjórnvalda gera þær vonir að engu. Fundað verður í baklandi stéttarfélaganna á næstu sólarhringum og á fimmtudag funda formenn félaganna með SA hjá Ríkissáttasemjara.

Samflotsfélögin standa sameinuð og staðföst í kröfunni um að launafólk geti lifað af launum sínum og að stjórnvöld geri löngu tímabærar kerfisbreytingar í réttlætisátt.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – stéttarfélags
Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ.“