Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, segist ekki á leið úr Miðflokknum og þar af leiðandi sé hann ekki á leið yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Hann gerir hins vegar kröfu um ákveðna uppstokkun innan flokksins og vill að boðað verði til flokksráðsfundar, þar sem hann telji ekki rétt að þeir þingmenn flokksins, sem stigu tímabundið til hliðar og hafa snúið aftur til starfa, gengi að óbreyttu fyrirkomulagi á trúnaðarstörfum sínum fyrir flokkinn vísu.
Birgir sendi Fréttablaðinu yfirlýsingu í dag þessa efnis og fer hún hér á eftir í heild sinni:
Þessa dagana velta ýmsir fjölmiðlar því fyrir sér hvort ég hyggist segja mig úr lögum við þingflokk Miðflokksins og sé jafnvel á leið yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Af því tilefni vil ég koma eftirgreindu með skýrum hætti á framfæri:
Mér finnst ekki rétt að þeir félagar mínir í þingflokknum sem stigu tímabundið til hliðar og sneru síðan til þingstarfa sinna á nýjan leik gangi að óbreyttu fyrirkomulagi á trúnaðarstörfum sínum fyrir flokkinn vísu. Ég hef komið þeirri skoðun minni á framfæri við formann Miðflokksins að ég telji rétt að boða til flokksráðsfundar eins fljótt og auðið er til þess að fara yfir stöðuna og stokka m.a. upp spilin í verkaskiptingu þingmanna eftir því sem þurfa þykir.
Ég er ekki á leiðinni úr þingflokknum. Ég er þar af leiðandi heldur ekki á leið yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Ég geri hins vegar kröfu um ákveðna uppstokkun og til þess hef ég breiðan stuðning í pólitísku baklandi mínu og einnig hjá félögum mínum í Miðflokknum víðsvegar um landið.