Bókin ómissandi sem er alltaf seint á ferðinni fyrir jólin

Víðir Sigurðsson blaðamaður.

„Það sem er nýtt í bókinni í ár er að sjálfsögðu umfjöllun um lokakeppni heimsmeistaramótsins í Rússlandi og þátttöku Íslands þar, auk þess sem ég hef leitað til nokkurra sérfræðinga sem skrifa pistla um einstakar deildir Íslandsmótsins,“ segir einn reyndasti blaðamaður þjóðarinnar, Víðir Sigurðsson á Morgunblaðinu, um nýútkomna bók sína um íslenska knattspyrnu fyrir árið 2018.

„Bókin er alltaf seint á ferðinni fyrir jólin en það er vegna þess að engu er sleppt og hún fer ekki í prentun fyrr en síðustu landsleikjum ársins er lokið. Í ár var það 20. nóvember,“ segir Víðir í samtali við Viljann.

Bókaútgáfan Tindur hefur gefið út bókina Íslensk knattspyrna 2018 eftir Víði, en þetta er 38. bókin í þessum flokki sem hóf göngu sína árið 1981. Bókin er 272 blaðsíður, prýdd rúmlega 370 myndum, og í henni er að finna allt sem gerðist í íslenskum fótbolta á árinu 2018. 

Þar er umfjöllun um Íslandsmótið í öllum deildum karla og kvenna, alla landsleiki Íslands í öllum aldursflokkum og sérstaklega um þátttöku Íslands í lokakeppni HM í Rússlandi. Bikarkeppnin, Evrópuleikirnir, allt um atvinnumennina erlendis, allir yngri flokkarnir, úrslit og stöður.

Mjög ítarleg tölfræði um leikmenn og lið í öllum deildum, deildaleiki og landsleiki, ásamt ferilskrá atvinnumannanna okkar. 

Viðtöl í bókinni eru við Heimi Hallgrímsson, Hallberu Guðnýju Gísladóttur, Birki Má Sævarsson og Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur. Hörður Magnússon skrifar pistil um Pepsi-deild karla, Edda Garðarsdóttir um Pepsi-deild kvenna og Helena Ólafsdóttir um Inkasso-deild kvenna og þá segir Wentzel Steinarr Kamban fyrirliði Aftureldingar frá keppninni í 2. deild karla.