Eiga von á óbreyttum stýrivöxtum

Hagfræðideild Landsbankans telur að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda vöxtum óbreyttum á næsta fundi nefndarinnar, en ákvörðunin verður tilkynnt miðvikudaginn 12. desember.

„Við teljum þó alls ekki útilokað að nefndin hækki vexti um 0,25 prósentustig,“ segir í Hagsjá Landsbankans sem send var út í dag.

Síðast hækkaði nefndin vexti um 0,25 prósentustig og sætti sú ákvörðun harðri gagnrýni. Til dæmis sagði forysta launafólks að um kaldar kveðjur væri að ræða í aðdraganda kjaraviðræðna.

„Sú hækkun kom ekki á óvart, en við töldum allt eins líklegt að sú hækkun kæmi í desember. Lækkun bindiskyldunnar úr 40% í 20% var tekin á vettvangi Seðlabankans örfáum dögum fyrir síðustu vaxtaákvörðun. Við töldum líklegt þá að nefndin myndi vilja bíða og sjá áhrif lækkunar bindiskyldunnar áður en tekin væri ákvörðun um hækkun vaxta.

Með síðustu vaxtahækkun var nefndin í raun ekki að herða aðhaldið. Hún var einungis að bregðast við því að raunstýrivextir á mælikvarða verðbólgu og verðbólguvæntinga hefðu lækkað frá síðasta fundi nefndarinnar og því þyrfti að færa þá vexti aftur upp ef viðhalda ætti óbreyttu aðhaldsstigi,“ segir hagfræðideild Landsbankans.