„Kjörnir fulltrúar stunda hrossakaup á börum bæjarins, eru uppvísir af ósæmilegri hegðun, jafnvel kynferðislegri áreitni. Stjórnvöld lækka veiðigjöld og hækka framlög til stjórnmálaflokka. Þjóðarsjóður skal stofnaður fyrir einhverja dekurkálfa að gambla með. Kjararáð hækkar kjör þeirra um tæplega helming um leið og ekkert svigrúm er til kerfisbreytinga eða kjarabóta fyrir þjóðina. Skýrsla um hvítþvott fjármálakerfisins segir okkur að vanda betur valið á þeim sem fá bankana í hendurnar næst. Uppbygging innviða verða svo fjármagnaðir með gjaldtöku.“

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í harðorðri færslu á fésbókinni í dag, þar sem hann birtir mynd af gulu vesti sem hann pantaði sér í dag og vísar þar með til baráttu svonefndra gulvestunga sem hafa staðið fyrir víðtækum í Frakklandi og víðar í Evrópu undanfarna daga og vakið mikla athygli.

„Ekkert er að marka kosningaloforðin eins og venjulega því stjórnmálamenn virðast eingöngu hafa hugsjónir og drifkraft í að breyta á 4 ára fresti, og þá aðeins í nokkra daga. Í millitíðinni eru þau kyrfilega læst í neðstu skúffu ríkisstjórnarinnar með stórum bunka spillingarmála, panamaskjala og nýju stjórnarskránni. 

Vestið sem formaður VR keypti sér í dag.

Ég pantaði mér gult vesti í dag.

Á ég að panta fleiri?“ spyr formaður VR.

Í samtali við Viljann, segist Ragnar Þór fá gríðarlega mikil viðbrögð við ákalli sínu.

„Mér sýnist á viðbrögðunum að dæma að ég sé ekki einn um að vera búinn að fá nóg af spilltum, vanhæfum og getulausum stjórnmálamönnum.“