„Ég hugsa að ég tjái mig lítið á þessu stigi máls og hef ekkert að segja annað en að ég er gjörsamlega í rusli yfir þessu og þessi orðanotkun er algjörlega óverjandi og óafsakanleg,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis
Steingrímur lét þessi ummæli falla í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í dag, en óhætt er að segja að ummæli þingmanna í gleðskap á Klausturbar nýverið séu farin að draga dilk á eftir sér.
Þingmennirnir hafa stigið fram og beðið afsökunar á ummælum sínum í dag og sagt þau óafsakanleg.
Þingkonurnar þrjár ósáttar
Þrjár þingkonur, sem komu til tals í umræðum þingmannanna sem teknar voru upp og lekið til fjölmiðla, eru þær Inga Sæland, Oddný Harðardóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Þær sendu frá sér svofellda yfirlýsingu í dag:
„Ummæli þau sem þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins létu falla 20. nóvember á Klaustri lýsa skammarlegum viðhorfum til kvenna og við lítum þau verulega alvarlegum augum.
Það er algjörlega ólíðandi að karlar í valdastöðum sýni slíka kvenfyrirlitningu og tjái sig á jafn niðrandi hátt um konur og samkynhneigða. Þá skiptir einu hvort um er að ræða pólitíska andstæðinga eða samherja.
Ummæli þessi opinbera viðkomandi þingmenn og dæma sig sjálf. Hegðun þeirra er ekki til þess fallin að auka virðingu almennings á Alþingi eða á stjórnmálamönnum og setur samstarf og trúnað í uppnám.
Við fordæmum ummælin og munum óska eftir því að málið verði tekið upp í forsætisnefnd.
Að lokum viljum við minna á eftirfarandi siðareglur sem við þingmenn höfum öll undirgengist:
Meginreglur um hátterni.
- gr.
Alþingismenn skulu sem þjóðkjörnir fulltrúar:
a. rækja störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika,
b. taka ákvarðanir í almannaþágu,
c. ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni,
d. nýta þá aðstöðu sem þeim er veitt við störf sín með ábyrgum hætti,
e. ekki nýta opinbera stöðu sína til persónulegs ávinnings fyrir sig eða aðra,
f. greina frá öllum hagsmunum sem máli skipta og varða opinbert starf þeirra
og leggja sig fram um að leysa úr árekstrum sem upp kunna að koma með
almannahag að leiðarljósi,
g. efla og styðja grundvallarreglur þessar með því að sýna frumkvæði og fordæmi.
Hátternisskyldur. 7. gr. Þingmenn skulu í öllu hátterni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virðingu.“
Oddný Harðardóttir, Inga Sæland og Silja Dögg Gunnarsdóttir.