Forystumenn Alþýðusambandsins gagnrýna að ofurhækkanir Kjararáðs til handa æðstu embættismönnum ríkisins muni halda sér og festast í lög, samkvæmt frumvarpi sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þau fagna því hins vegar að til framtíðar verði ákvarðanir gegnsærri og bundnar ákveðnum tímapunkti, en ekki handahófskenndar eins og hingað til.
„Það er frekar holur hljómur í því þegar kjörnir fulltrúar gagnrýndu ofurhækkanir kjararáðs fyrir sjálfa sig en ætla nú að lögfesta þessar sömu hækkanir í staðinn fyrir að vinda ofan af þeim nú þegar valdið er komið í þeirra hendur,“ segja forseti og varaforsetar ASÍ í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér.
„Ef frumvarpið verður samþykkt er forseti Íslands með 10-11 föld lágmarkslaun ríkisstarfsmanna. Forsætisráðherra og aðrir ráðherrar eru með 6-7 föld lágmarkslaun ríkisstarfsmanna en þingmenn eru með ferföld lágmarkslaun. Ef laun eiga að kristalla ábyrgð og mikilvægi starfa gegnir forsetinn því 10-11 sinnum mikilvægara og ábyrgðameira starfi en starfsfólk í ræstingum og umönnun. Er það sanngjarnt?“
„Alþýðusambandið hefur sagt að það sé lágmark að vinda ofan af launum kjörinna fulltrúa og/eða frysta þau til ársloka 2021. Nú er heimilt að taka ákvarðanir um enn eina hækkunina strax í júlí á næsta ári. Við viljum ganga lengra og nýta þetta tækifæri til að ákvarða hvaða launasetning er sanngjörn og réttlát miðað við lægstu laun. Er starf forsætisráðherra í alvöru 6-7 sinnum mikilvægara en umönnunarstarf?“ segja þau Drífa Snædal forseti ASÍ og Vilhjálmur Birgisson og Kristján Þórður Snæbjarnarson varaforsetar sambandsins í yfirlýsingu sinni.