Guðlaugur Þór heimsótti Grænland

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt Ane Lone Bagger utanríkisráðherra Grænlands

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra átti í gær fund með Ane Lone Bagger sem fer með utanríkismál í Grænlensku landsstjórninni. Hann er staddur í vinnuheimsókn á Grænlandi til að kynna sér starfsemi ýmissa fyrirtækja og sveitarfélaga en þónokkuð er um íslenskar fjárfestingar í þessum hluta landsins. Frá þessu segir á vef Stjórnarráðsins.

„Samskipti landanna hafa aukist jafnt og þétt að undanförnu og það er okkur mikilvægt að styrkja þessi tengsl. Íslenskir fjárfestar eiga þátt í því að byggja hér upp atvinnustarfsemi og það verður spennandi að kynna sér þessi fyrirtæki í framhaldinu,“ sagði Guðlaugur Þór.

Ráðherrarnir ræddu tvíhliða samskipti þjóðanna, m.a. viðskipti og verslun, þ.m.t. aukin tækifæri í tengslum við flugsamgöngur og uppbyggingu ferðaþjónustu, sjóflutninga, aukið samstarf á sviði menntamála, menningar og lista, og samskipti á milli íslenskra og grænlenskra félagasamtaka. Ráðherrarnir ræddu einnig málefni norðurslóða og norrænt samstarf, en Ísland fer með formennsku í hvoru tveggja um þessar mundir. Þau ákváðu að efna til árlegs samráðsfundar sín á milli fyrsti fundur verður haldinn í tengslum við ársfund Vestnorræna ráðsins í Nuuk í október nk. 

Í föruneyti Guðlaugs Þórs er einnig Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður starfshóps um aukin samskipti Íslands og Grænlands.