Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi og varaforseti ASÍ, segir að mögulegt gjaldþrot Wow geti þýtt að verbólga fari á skömmum tíma upp í 7%. Hann vill aftengja neysluvísitöluna vegna málsins til að forða verðtryggðum lánum heimilanna frá því að stökkbreytast.
Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Vilhjálms í kvöld. Hann segir afar tvísýnt hvort takist að forða WOW air frá gjaldþroti ef marka má fréttir síðustu daga.
„En hvaða afleiðingar getur það haft á íslensk heimili ef WOW air verður gjaldþrota?
Jú það hefur komið fram í fréttum að ef fyrirtækið fer í gjaldþrot þá geti það orsakað að verðbólga á Íslandi fari á skömmum tíma upp í allt að 7%
Það þýðir að verðtryggðarskuldir íslenskra heimila munu hækka um 105 milljarða og sem dæmi þá mun 35 milljóna verðtryggt húsnæðislán hækka um 2,5 milljónir á ársgrundvelli eða sem nemur 204 þúsundum í hverjum mánuði!
Hugsið ykkur ofbeldið sem stjórnvöld og alþingismenn bjóða íslenskum heimilum uppá með því að leyfa verðtryggðlán. Já hugsið ykkur ef „bara“ eitt flugfélag fer í gjaldþrot þá geta verðtryggðarskuldir heimilanna hækkað um 105 milljarða á ársgrundvelli.
Það er alls ekki boðlegt að fjármálelítan hafi möguleika á níðast svona á neytendum með svona glórulausum fjármálagerningum eins og verðtryggðarskuldir heimilanna eru.
Já ef eitt flugfélag fer á hausinn þá getur það kostað íslensk heimili 105 milljarða og stjórnvöld halda áfram miskunnarlausri hagsmunagæslu fyrir fjármálaelítuna og þá ríku í íslensku samfélagi.
Ég mun taka það upp á vettvangi Alþýðusambands Íslands að ASÍ krefji stjórnvöld um að þau tryggi það að neysluvísitalan detti út þegar hún hefur náð neðrivikum mörkum Seðlabankans til að verja íslensk heimili fyrir þeirri óðaverðbólgu sem getur orðið ef WOW air fer í þrot.
Við skulum vera minnug þess þegar verðtryggðarskuldir heimilanna stökkbreyttust á einni nóttu í hruninu um 400 milljarða með skelfilegum afleiðingum fyrir almenning í þessu landi.
Gerum fortíðarvanda verðtryggðra húsnæðislána ekki að framtíðarvanda og tökum því neysluvísitöluna úr sambandi til að hlífa saklausum íslenskum heimilum fyrir því að verða ekki fórnað aftur á blóðugu altari verðtryggingar!
Það mun ekki fá að gerast átakalaust á minni vakt sem 1. varaforseti ASÍ, svo mikið er víst!“