Markvisst unnið að því að koma kristinni trú út úr samfélaginu

Karl V. Matthíasson, sóknarprestur í Guðríðarkirkju og fv. alþingismaður fyrir Samfylkinguna, segir að markvisst sé unnið að því að koma kristinni trú út úr samfélaginu með hvers kyns rökum sem að hans hyggju megi kalla rakaleppa.

Karl bendir á umræðu um aukna andlega vanlíðan fólks á sama tíma og ekki megi lengur koma með trú og trúariðkun inn í líf barna og ungmenna.

„Í vissum tilvikum er um töluverða aðgangshörku að ræða sem ég hef orðið var við í pólitíkinni, samfélagsmiðlum og jafnvel í virtum fjölmiðlum,“ segir Karl.

„Trúin á Jesú Krist er afl sem stuðlar að aukinni gleði. Afl sem getur hjálpað fólki til að brotna ekki þegar hvers kyns ólgusjóar lífisins skella á okkur. Þegar foreldri gerir bæn með barni sínu myndast traust hjá barninu, vegna þess að barnið finnur að foreldrið treystir. Þegar börn fara í kirkju með foreldrum sínum til að hitta Guð eiga þau einstaka stund sem snýst um háleita og leyndardómsfulla hluti er gefa börnunum þá tilfinningu að þau eru elskuð og að líf þeirra er óendanlega mikils virði,“ bætir Karl við í færslu sem hann skrifar á fésbók.

Hann hvetur foreldra að lokum til þess að fara með bænir með börnum sínum.