Sögulega litlar hækkanir urðu á fasteignamarkaði á síðasta ári, en raunverð íbúða stóð nánast í stað á milli ára og meðaltalsnafnverð íbúða hefur ekki hækkað jafn lítið síðan árið 1997, að frátöldum árunum 2009-2010. Þetta kemur fram í hagsjá Landsbankans í dag.
Allt síðastliðið ár voru verðhækkanir mjög hóflegar á fasteignamarkaði, að því er fram kom í samantekt bankans. Að jafnaði mældust nafnverðshækkanir milli mánaða um 0,2%. Íbúðaverð hækkaði alls um 3,5% að meðaltali milli ára sem er minnsta hækkun sem hefur orðið á höfuðborgarsvæðinu síðan 1997, ef frá eru talin árin 2009 og 2010 þegar íbúðaverð lækkaði milli ára.
Íbúðamarkaðurinn daufur þar til í október
Raunverð íbúða stóð nánast í stað milli ára. Það hækkaði aðeins um 0,9% sem er einnig minnsta hækkun á raunverði milli ára síðan 1997. Raunverð lækkaði þó árin 2001 og 2002 og eins 2008-2010. Framan af var árið 2019 nokkuð tíðindalítið á fasteignamarkaði. Viðskipti virtust síðan taka verulega við sér í október þegar 60% fleiri íbúðir seldust en í október árið áður.
Ekki er vitað hvað olli þessari aukningu. Það má vera að óvissunni sem ríkti á vormánuðum hafi verið létt. Sú óvissa snéri meðal annars að því hvaða áhrif gjaldþrot WOW air myndi hafa á hagkerfið, eins voru undirritaðir kjarasamningar þar sem umfangsmiklum aðgerðum var lofað á húsnæðismarkaði. Yfirlýsingar, sem ekki voru komnar til framkvæmda, gætu hafa skapað ákveðna biðstöðu, að minnsta kosti fyrst um sinn.