„Ég varð dapur að heyra hvað haft er eftir Francis páfa í bók sem væntanleg er á næstu dögum. Hann er samkvæmt fréttum sagður hafa áhyggjur af auknum fjölda samkynhneigðra karla innan prestastéttarinnar.“

Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. Hann hefur tekið sig til og sent Frans páfa bréf í tilefni af ummælum hans í nýútkominni bók, þar sem páfinn segir að svo virðist sem samkynhneigð sé í tísku og það viðhorf sé farið að hafa veruleg áhrif innan kirkjunnar.

Guðmundur Ingi, eða Mummi eins og hann er jafnan kallaður, birtir umslagið að bréfinu til páfans á fésbókarsíðu sinni, en áður hafði hann skýrt frá því hvert innihald þess ætti að vera:

„Kæri Francis.

Kynhneigð er ekki lífsstíll. Kynhneigð er ekki val og ekki kynvitund heldur. Hún bara er. Líka kynhneigð hinsegin fólks. Kynhneigð okkar er ekki tískufyrirbrigði sem við skiptum út með nýrri vorlínu. Við bara erum svona.

Kæri Francis.

Ég íhugaði einu sinni að verða munkur. Þá dvaldi ég 21 árs gamall í kaþólsku klaustri. Ég veit að það að ganga í klaustur er nokkurra ára strangt lærdómsferli og ég veit að það þarf að gera kröfur til þeirra sem ákveða að gerast kirkjunnar þjónar. En það kemur kynhneigð ekkert við. Bara ekki neitt.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra, eða Mummi eins og hann er kallaður.

Ég verð dapur að heyra að þú sem ég hef annars haft ágætis mætur á sjáir ekkert rými fyrir hinsegin fólk á meðal presta, munka og nunna.

Kæri Francis.

Þú gerir stór mistök með því að útiloka framlag hinsegin fólks. Eftir því sem þú hefur fjölbreyttari hóp í vinnu hjá þér, eru meiri líkur á að kirkjan þín geti betur rækt hlutverk sitt – að vera boðberi kærleika, friðar og ástar. Það verður meiri skilningur innan hennar.

Kæri Francis.

Maður í jafn valdamikilli stöðu og þú hefur áhrif á fjölda fólks um allan heim. Orðum þínum fylgir ábyrgð. Mikil ábyrgð. Ég vona að þú sjáir villu þíns vegar. Gangi þér vel.

Kærar kveðjur frá Íslandi, Mummi.“