Umhverfisstofnun „ætlar að láta ógert að svara gífuryrðum um talnafalsanir“

Mikil áhersla er lögð á að benda á kolefnislosun vegna vegasamgangna. Mynd/Wikipedia

Umhverfisstofnun stendur að fullu við fyrri yfirlýsingu um 34% kolefnislosun vegna vegasamgangna, og „ætlar að láta ógert að svara sérstaklega gífuryrðum um „talnafalsanir“ Umhverfisstofnunar í losunarbókhaldi“. sbr. tilkynningu á vef stofnunarinnar frá í gær.

Í henni segir að borið hafi á misskilningi í opinberri umræðu vegna fyrri fréttar Umhverfisstofnunar, en vefþjóðviljinn Andríki gagnrýndi stofnunina vegna þeirra upplýsinga sem þar komu fram. M.a. var bent á að hlutfall vegasamgangna sé aðeins 6% af heildarkolefnislosun Íslands.

Í nýrri tilkynningu stofnunarinnar segir að um sé að ræða 34% af þeirri losun sem á sér stað innanlands en undanskilji viðskiptakerfi Evrópusambandsins (aðallega stóriðju og flug frá og til Evrópu), alþjóðaflug og millilandasiglingar,  sem og landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF).

Losunarbókald Íslands rýnt sérstaklega af alþjóðastofnunum

Þetta sé sú losun sem kallast „losun á beinni ábyrgð stjórnvalda“, en hugtakið kemur fram í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem var gefin út í fyrra af Umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Ef bætt sé við losun frá viðskiptakerfi ESB, LULUCF, alþjóðaflugi og millilandasiglingum þá verði hlutfallsleg losun vegasamgangna 6%, segir m.a. í tilkynningunni.

„Ástæða þess að Umhverfisstofnun miðlar sérstaklega upplýsingum um þá losun sem fellur undir beina ábyrgð stjórnvalda er að sú losun liggur til grundvallar þeim skuldbindingum sem ríkið hefur gengist við gagnvart ESB. Ísland fær sem sagt úthlutað „losunarkvóta“ og ef losun verður meiri þá mun ríkið þurfa að greiða fyrir losun sem fer umfram kvóta.“

Losunarbókhald Íslands er árlega rýnt mjög ítarlega af sérfræðingum Evrópusambandsins og Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (UNFCCC). Þannig er tryggt að losunarbókhaldið sé rétt, nákvæmt og fullnægjandi.