Svo virðist sem kórónaveiran sé aftur komin á flug hér á landi. Nú berast fregnir af fjölda nýrra smita, hundruð eru komin í sóttkví og hópsmit er komið upp á Akranesi.
Í morgun funduðu almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis vegna þeirra smita sem greinst hafa á Íslandi frá 8. júlí. Í dag eru í heildina 21 með staðfest smit veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. 173 eru í sóttkví. Um ellefu aðskilin mál er að ræða og í tveimur þeirra hefur uppruni smits ekki fengist staðfestur.
Íslensk erfðagreining hefur raðgreint sýni til þess að finna uppruna smitanna. Þeir einstaklingar sem eru með staðfest smit hafa sýnt einkenni veirunnar en enginn er alvarlega veikur og enginn er á sjúkrahúsi.
Áríðandi er að halda því til haga að þeir sem fara í sýnatöku haldi sig heima þar til neikvæð niðurstaða hefur borist, segir í tilkynningu frá Almannavörnum.
Þá greinir fréttavefurinn Skessuhorn á Vesturlandi frá því að hópsmit sé komið upp í bænum. Þetta staðfestir Ásmundur Kr. Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við Skessuhorn.
Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning um hópsmitið í dag. Ekki liggur fyrir hversu margir eru smitaðir, en smitrakning stendur yfir. Lögregla hvetur fólk til að fara varlega á Akranesi sem og annars staðar í kjölfar smitsins.
„Með aðgerðum almannavarna, embættis landlæknis og stjórnvalda hefur hingað til náðst góður árangur í að hefta útbreiðslu Covid-19 hér á landi. Að fólk hugi vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum. Þar er handþvottur og sótthreinsun lykilatriði. Rétt er að brýna fyrir almenningi að gera slíkt áfram og að þjónustufyrirtæki og stofnanir sjái til þess að sóttvarnir séu til staðar,“ segir þar ennfremur.
Helstu einkenni Covid-19 sýkingar minna á venjulega flensu eru, hiti, hósti, bein- og vöðvaverkir, þreyta, meltingareinkenni (kviðverkir,ógleði/uppköst, niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en eru þó þekkt, breyting eða tap á bragð- og lyktarskyni er lýst hjá 20–30% sjúklinga. Sýni einstaklingur einkenni eða vakni grunur um smit í nærumhverfi skal hinn sami halda sig heima, hafa samband við sína heilsugæslu eða í gegnum netspjall á heilsuvera.is. Einnig er hægt að hafa samband við Læknavaktina í síma 1700.
Komi upp smit er smitrakning lykilatriði til þess að kanna mögulega útbreiðslu. Því minna almannavarnir og landlæknir á mikilvægi þess að fólk sæki Rakning C-19 appið.. Slíkt getur auðveldað smitrakningu. Mikilvægar upplýsingar um Covid-19 má finna á vefsíðunni www.covid.is