Í dag verða breytingar á sóttvarnaráðstöfunum vegna komu farþega til Íslands frá svæðum, sem sóttvarnalæknir skilgreinir sem áhættusvæði, eins og Viljinn hefur greint frá. Reglugerð heilbrigðisráðherra segir fyrir um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Þannig hafa þeir, sem dvalið hafa lengur en sólarhring á skilgreindum áhættusvæðum val um að fara í 14 daga sóttkví eða fara í sýnatöku vegna COVID – 19.
Undanskildir kröfu um sóttkví og/eða sýnatöku við komuna til landsins eru:
– Farþegar í tengiflugi/tengifarþegar, sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð þurfa hvorki að sæta sóttkví né sýnatöku
– Börn fædd árið 2005 eða síðar
– Þeir sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest að hafi veikst af COVID-19 og hafa lokið einangrun.
Einnig tekur gildi í dag, auglýsing heilbrigðisráðherra um frekari tilslökun á samkomubanni vegna COVID-19. Megin breytingin felst í því að fjöldamörk á samkomum hækka úr 200 í 500. Þá falla jafnframt niður takmarkanir á gestafjölda sundlauga og líkamsræktarstöðva.