Að vera eða vera ekki með grímu?

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum sem felur í sér verulegar tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum tók gildi í gær. Með reglugerðinni hefur m.a. verið slakað til muna á kröfum um grímuskyldu sem hefur m.a. verið felld niður í verslunum og á vinnustöðum. Þó er skylt að bera grímu við tilteknar aðstæður.

Á stjórnarráðsvefnum hefur heilbrigðisráðuneytið tekið saman spurningar og svör um grímunotkun, hvenær þurfi að bera grímu og hvenær ekki, sem fólk er hvatt til að kynna sér.