Andstæðingar EES að pissa í skóinn sinn með andstöðu við orkupakkann

Davíð Þorláksson kom að vinnunni fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Andstæðingar veru Íslands á EES hafa ákveðið að gera 3. orkupakkann að deilumáli í stað þess að segja berum orðum að þeir vilji ganga úr EES.

Þetta segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins og fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Hann bendir á að frá því MMR hóf að mæla stuðning við inngöngu í Evrópusambandið mánaðarlega í maí 2011 hafi stuðningur við inngöngu verið á bilinu 20-37% á meðan andstaðan hefur verið 45-65%. Í síðasta mánuði hafi stuðningurinn verið 32% og andstaðan 50%.

„Þessi mikla andstaða, Brexit og uppgangur popúlista beggja vegna Atlantshafsins virðist hafa hleypt nýju blóði í andstæðinga EES,“ segir Davíð og bætir við að EES gefi okkur Íslendingum aðgang að innri markaði Evrópu sem auðveldi okkur að flytja vöru og þjónustu inn og út.

„Það er samband á milli vaxandi alþjóðaviðskipta og minnkandi fátæktar og aukinnar velmegunar. Alþjóðaviðskipti bæta lífskjör allra, sérstaklega íbúa í litlu og landfræðilega einangruðu landi. Ef við gengjum úr EES þá værum við berskjölduð gagnvart verndarhyggju. Bæði því að erlend ríki beiti okkur viðskiptaþvingunum og að íslenskir stjórnmálamenn beiti þvingunum sem bitnar á endanum á okkur.

Það er t.d. EES að þakka að við erum ekki með gjaldeyrishöft, ekki með einokun á framleiðslu og sölu á rafmagni og að til stendur að afnema bann við innflutningi á fersku kjöti og fjöldatakmarkanir á leigubílum,“ segir hann.

Og lokaorð Davíðs Þorlákssonar eru þessi:

„Ég hef aldrei verið stuðningsmaður þess að Ísland gangi í ESB. Ef Ísland gengur úr EES þá finnst mér augljóst að Ísland verði að ganga í sambandið. Eflaust gildir það um fleiri. Ég held því að andstæðingar EES séu að pissa í skóinn sinn með þessari vegferð.“