„Þetta mál er mér ekki til sóma og mér þykir það mjög leiðinlegt. Ég var búin að drekka of mikið og brást illa við þegar dyraverðir opnuðu hurðina á klósettinu, ég var dónaleg og streittist á móti. Óháð öllu öðru, var hegðun mín ekki til fyrirmyndar,“ segir Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, í yfirlýsingu sem hún hefur sent fjölmiðlum í dag, en hún var sem kunnugt er handtekin sl. föstudagskvöld.
„Ég hef beðið hlutaðeigandi afsökunar á framkomu minni. Það eru forréttindi að vera kjörinn fulltrúi, því fylgir ábyrgð og mér þykir leitt að hafa brugðist svona við,“ bætir þingmaðurinn við.
Í dagbók lögreglu um störf helgarinnar, segir um aðfaranótt laugardags: „Dyraverðir á skemmtistað í miðbænum óska eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja ofurölvi aðila af staðnum.“
Athygli vekur, að Arndís Anna birti færslu á fésbókina í gærkvöldi, þar sem uppleggið var að hún sjálf hefði verið beðin afsökunar á atvikinu:
„Ég brá mér á skemmtistað á föstudagskvöld, eins og gengur og gerist, og fór á einn minn uppáhaldsstað, Kiki. Ég fór á salernið og var búin að vera þar sjálfsagt í talsverðan tíma þegar dyraverðir opna hurðina. Mér brá við þetta og við að það stæði til að bera mig út með valdi, þegar mér fannst ekki tilefni til.
Ég hef skilning á því að starf dyravarða á skemmtistöðum sé erfitt og ekki síst með fullt hús af fólki í misjöfnu ástandi, þó mín upplifun hafi verið sú að þarna hafi framganga þeirra verið óþarflega harkaleg og niðurlægjandi. Ég hef talað við fyrirsvarsmann staðarins sem bað mig afsökunar fyrir þeirra hönd, sem mér þykir afar vænt um.
Ég er enn fremur þakklát lögreglunni fyrir þeirra viðbrögð og fagmennsku, og fyrir alúðina sem þau sýndu mér í kjölfarið, enda komst ég í talsvert uppnám við þessar aðfarir. Það að lögreglan taki útkall frá hinsegin skemmtistað alvarlega, hvers eðlis sem það er, og bregðist svona skjótt við er sérstaklega mikilvægt og yljaði það mér um hjartaræturnar í öllum þessum ósköpum.“