Áslaug Hulda Jónsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Garðabæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti ritara Sjálfstæðisflokksins, en það embætti losnar nú við skipan Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í ráðuneyti dómsmála.
Jón Gunnarsson, þingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi og fv. samgönguráðherra, lýsti um helgina sömuleiðis yfir framboði í embætti.
„Eftir að ljóst varð að nýr ritari verður kjörinn á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi hafa bæði félagar í flokknum og fjölmiðlar innt mig eftir því hvort ég vilji gefa kost á mér. Hefur sá mikli áhugi sem ég hef fundið fyrir hreyft við mér,“ segir Áslaug Hulda í færslu á fésbókinni.
„Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það sé flokknum nauðsynlegt að í forystu hans sé fulltrúi sveitarstjórnarstigsins. Stórir og mikilvægir málaflokkar sem snerta daglegt líf okkar eru undir og þá hafa einnig margir af stærstu sigrum flokksins unnist í einstökum sveitarfélögum. Þar liggur okkar sterka grasrót og að henni þarf að hlúa vel.
Ég hef skipað 1. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í síðustu þremur sveitarstjórnarkosningum, þ.m.t. í síðustu kosningum þegar flokkurinn landaði sinni bestu niðurstöðu og fékk 62% fylgi og átta bæjarfulltrúa af ellefu í bæjarstjórn. Það var um leið besta niðurstaða Sjálfstæðisflokksins á landinu. Slíkur árangur næst ekki af sjálfu sér í sívaxandi bæjarfélagi.
Ég tel mig hafa margt fram að færa í forystu Sjálfstæðisflokksins. Ég bý að áralangri reynslu úr starfi flokksins sem formaður bæjarráðs, forseti bæjarstjórnar, bæjarfulltrúi, aðstoðarmaður ráðherra, kosningastjóri í sveitarstjórnar- og alþingiskosningum auk annarra trúnaðarstarfa.
Ég trúi að flokkurinn eigi mikið inni hjá kjósendum um allt land. Það er hlutverk kraftmikillar forystu flokksins að virkja almennilega sem flesta flokksmenn til að uppskera sem mest.
Já, ég gef kost á mér í embætti ritara Sjálfstæðisflokksins,“ segir Áslaug.