Atvinnuleysisbætur gætu numið 5 milljörðum — sama og vantaði inn í WOW

Runólfur Ágústsson.

Runólfur Ágústsson, fv. rektor, sem verið hefur formaður stjórna Atvinnuleysistryggingasjóðs og Vinnumálastofnunar, veltir upp áhrifum gjaldþrots WOW og fjöldauppsagna víða í kjölfarið á útgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í færslu á fésbókinni segir hann:

„Fullar bætur eru í dag tæpar 300 þúsund krónur á mánuði. Ef þessi hópur verður í 6 mánuði án vinnu gætu útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs aukist um rúma 5 milljarða króna.

Það er sú fjárhæð sem vantaði inn í WOW!“

Aldrei jafn margir misst vinnuna á sömu stundu

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, fór til fundar við forsvarsmenn þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ í dag og ræddi stöðuna sem upp er komin. 

Stjórnvöld hafa í ljósi frétta af stöðu WOW air undanfarna daga og vikur verið í viðbragðsstöðu ásamt Vinnumálstofnun. Var í því skyni skipað teymi innan stofnunarinnar sem fékk það hlutverk að setja upp viðbragðsáætlun. Þegar ljóst var í gær að félagið væri gjaldþrota var sú áætlun virkjuð.

Þá lagði Ásmundur Einar það til við ríkisstjórnina í morgun að Vinnumálastofnun verði veitt 80 milljón króna tímabundið framlag vegna þeirra óvæntu viðfangsefna sem blasa við. Var sú tillaga samþykkt.

Félagsmálaráðherra fundaði á Suðurnesjum í morgun.

„Aldrei í sögu Atvinnuleysistryggingasjóðs og Ábyrgðasjóðs launa hafa jafn margir misst vinnuna á sömu stundu og ljóst að starfsemi Vinnumálastofnunnar verður að miklu leyti helguð þessu verkefni á komandi vikum og mánuðum,“ segir Ásmundur Einar.

Ásmundur sagði félagsmálaráðuneytið koma til með að eiga reglulega fundi með Vinnumálastofnun næstu daga til að fylgjast með framvindu mála og veita henni þann stuðning sem nauðsynlegt er. „Við munum halda áfram að vakta stöðuna, vinna þétt saman og vera í góðu samtali við hagsmunaaðila og stofnanir,“ segir Ásmundur Einar.