Bergþór kýs að stíga til hliðar sem formaður, Jón tekur við

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Jón Gunnarsson, er nýr formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis eftir að Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, ákvað að stíga til hliðar sem formaður. Ekki var sátt um óbreytta formennsku Bergþórs og vildu aðrir stjórnarandstöðuflokkar að Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, tæki við formennsku, en ekki náðist sátt um það heldur.

Eftirfarandi er tilkynning frá Vinstri grænum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum vegna málsins:

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur nú verið óstarfhæf um tíma og hefur það truflar störf Alþingis. Ekki hefur verið fundað í nefndinni síðan 29. janúar. Þingflokksformenn allra flokka hafa leitað leiða til að vinna úr stöðunni, án árangurs. Samkvæmt samkomulagi um nefndarformennsku minnihlutans hefur kom þessi nefndarformennska í hlut Miðflokksins. Miðflokkurinn hefur ekki viljað skipta um sinn fulltrúa í nefndinni.

Bergþór Ólason hefur nú kosið að stíga til hliðar úr formannssætinu.

Jón Gunnarsson mun taka við formennsku í nefndinni tímabundið á meðan reynt er að finna lausn í málinu sem allir geta sætt sig við. Ari Trausti Guðmundsson tekur við sem 1. varaformaður og Líneik Anna Sævarsdóttir verður 2. varaformaður.

Jón Gunnarsson fv. ráðherra.

Hluti af ábyrgð þeirra sem hafa meirihluta á Alþingi er að tryggja að störf þingsins geti gengið eðlilega fyrir sig. Því telja þingmenn stjórnarflokkanna eðlilegt að þetta sé lausnin á meðan samkomulag næst ekki um annað fyrirkomulag.

Það er öllum ljóst að um tímabundna lausn sé að ræða til að koma störfum nefndarinnar í rétt horf. Ef og þegar aðstæður breytast eru stjórnarflokkarnir reiðubúnir að endurskoða þessa stöðu og telja raunar mikilvægt að slíkt endurmat eigi sér stað fyrir þinglok. Þar sem hér er um tímabundna ráðstöfun að ræða líta stjórnarflokkarnir ekki svo á að taka þurfi upp allt samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu um formennsku í fastanefndum Alþingis að svo stöddu.