Bjarni: Aðgerðir til að greiða fyrir för dvalarleyfishafa á Gaza hingað til lands

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur formlega staðfest, með yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu, að þrír fulltrúar utanríkisráðuneytisins séu í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, og hafi verið frá því um síðastliðna helgi í þeim tilgangi að aðstoða við fólk á Gaza með dvalarleyfi á Íslandi.

Fulltrúar ráðuneytisins eiga í nánu samstarfi við norræn sendiráð og stjórnvöld á staðnum.

„Vonast er til að með aðgerðunum takist að greiða fyrir för dvalarleyfishafa, sem eru á lista sem íslensk stjórnvöld hafa sent til egypskra og ísraelskra stjórnvalda, yfir landamærin. Árangurinn er háður samþykki erlendra stjórnvalda og ástandinu við landamærin. Sú staðreynd að íslensk stjórnvöld halda ekki úti sendiskrifstofu á svæðinu gerir verkefnið einnig umfangsmeira en ella,“ segir í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins.