Bjarni neitar að una við launahækkanir bankastjóra

Fundargestur heilsar formanni Sjálfstæðisflokksins á fundi í Iðnó. / Viljinn: Erna Ýr Öldudóttir.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ritað stjórn Bankasýslu ríkisins bréf, og lýst þeirri skoðun sinni, að bankarnir hafi með launaákvörðunum fyrir æðstu stjórnendur ekki virt þau tilmæli sem beint var til þeirra í upphafi árs 2017 og sem ítrekuð voru gagnvart nýkjörnum stjórnum síðar það sama ár, þar sem lögð var áhersla á hófsemi og varfærni um launaákvarðanir.

„Við þá stöðu sem upp er komin verður ekki unað. Traust og trúnaður verður að geta ríkt milli þeirra sem falin er stjórn mikilvægra félaga og þeirra stjórnvalda er bera ábyrgð á starfsemi þeirra sem eigandi. Launaákvarðanir bankanna hafa nú þegar haft veruleg neikvæð áhrif á orðspor þeirra og þannig valdið þeim skaða, auk þess sem þær sendu óásættanleg skilaboð inn í þær kjaraviðræður sem nú standa yfir,“ segir hann.

„Er þess hér með óskað að Bankasýsla ríkisins komi framangreindi afstöðu ráðuneytisins á framfæri við viðkomandi stjórnir með afdráttarlausum hætti og ennfremur því, að ráðuneytið telji að bregðast eigi við þeirri stöðu sem upp er komin með tafarlausri endurskoðun launaákvarðana og undirbúningi að breytingum á starfskjarastefnum, sem lagðar verði fram á komandi aðalfundum bankanna,“ segir fjármálaráðherra ennfremur í bréfi sínu.