Björn Leví gerði ekkert með úrskurð siðanefndar og hjó enn í sama knérunn

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hjó enn í sama knérunn við upphaf þingfundar í dag er hann ræddi akstursgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Bætti hann um betur og ítrekaði ásakanir í garð Ásmundar, sem Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, hafði talist brotleg fyrir samkvæmt siðareglum þingsins.

Vísaði Björn Leví til þess að siðanefndin telji Þórhildi Sunnu brotlega. „Í sama áliti kemur fram að ég hafi ekki gerst sekur á broti á siðareglum að því er virðist af því að siðanefnd skildi mig ekki. Þau orð sem ég lét falla voru efnis- og innihaldslega nákvæmlega þau sömu og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir var dæmd brotleg fyrir. Vissulega notaði ég ekki nákvæmlega sömu orðin og það getur vel verið að það skipti máli þegar siðanefnd leggur mat sitt á merkingu orðanna.

Forseti. Mig langar því að vera eins skýrmæltur og ég get vegna álits forsætisnefndar þegar erindi mínu um endurgreiðslur vegna aksturskostnaðar var vísað frá þar sem kom fram að Ásmundur Friðriksson hafði vissulega fengið endurgreiðslu frá Alþingi vegna þáttagerðar fyrir ÍNN, að hann hafði hann fengið endurgreiðslur fyrir notkun á eigin bíl þrátt fyrir að það væri gegn reglum um slíkar endurgreiðslur og vegna þess að Ásmundur játaði hafa fengið endurgreiðslur vegna prófkjörsbaráttu í eigin flokki, sem er klárlega ekki hluti af starfi hans sem þingmanns.

Þá verð ég að tjá skoðun mína aftur og nota nú orð sem allir skilja, þar á meðal siðanefnd. Nú er rökstuddur grunur um að Ásmundur Friðriksson hafi dregið að sér fé, almannafé, og við sjáum ekki viðbrögð þess efnis að verið sé að setja á fót rannsókn á því.

Ég segi þau orð með fullri vitneskju um að þau hafi verið dæmd sem brot gagnvart siðareglum þingmanna. Við vitum það hins vegar öll hérna inni að þau eru sönn. Fyrir því liggur játning og staðfesting um frávísun forsætisnefndar.  Þess vegna er þetta rökstuddur grunur í allri merkingu þeirra orða. Ef við getum gerst brotleg við siðareglur fyrir að segja satt er voðinn vís,“ sagði hann.

Stappað nærri því að vera vítavert

Steingrímur J. Sigfússon, forseti þingsins, sagði af þessu tilefni að notkun Björns Levís á dagskrárliðnum með þessum hætti væri ekki með hæfi.

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, bætti um betur og sagði ummæli Björns Levís stappa nærri því að hafa verið vítaverð samkvæmt þingsköpum.

„Ég tel að ummælin hafi stappað því nærri að vera vítaverð eins og þingsköp kveða á um, ekki eingöngu vegna þess að í þeim fólst endurtekning á aðdróttunum og ærumeiðingum í garð Ásmundar Friðrikssonar heldur líka vegna þess að það er verið að gera lítið úr þeirri málsmeðferð sem átt hefur sér stað á vegum þingsins, bæði af hálfu forsætisnefndar og siðanefndar.

Mér finnst afar sérkennilegt að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, gangi fram með þeim hætti í ljósi allrar forsögu málsins, hvað það hefur fengið mikla umfjöllun og hvernig þessum ásökunum hans og fleiri hefur verið svarað,“ sagði Birgir ennfremur.