Covid-19: Norðurlöndin ræða að styrkja samstarf varðandi birgðaöryggi og viðbúnað

Forsætisráðherrar Norðurlanda og leiðtogar Álandseyja, Færeyja og Grænlands ræddu reynsluna af heimsfaraldri Covid-19, stöðu mála og næstu skref á fundi í morgun.

Fundurinn átti að fara fram í Danmörku um helgina en var breytt í fjarfund vegna farsóttarinnar, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Meðal þess sem rætt var á fundinum var sú hugmynd að styrkja samstarf Norðurlanda varðandi öryggi birgða og viðbúnaðargetu.   Ákveðið var að vinna það verkefni áfram á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar í formennskutíð Finnlands sem hefst á næsta ári.

Næsti fundur norrænu forsætisráðherrana fer fram í haust þar sem áhersla verður lögð á að ræða efnahagslega viðspyrnu landanna með grænum áherslum.